Everton – Wolves (deildarbikar) 1-0

Mynd: Everton FC.

Þá er komið að þriðju umferð í enska deildarbikarnum en sá leikur er á heimavelli gegn Wolves og hefst klukkan 18:45.

Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Keane, O’Brien, Maitland-Niles, Garner, Hackney, Grealish, Dewsbury-Hall, Dibbling, Barry.

Varamenn: Travers, King, Branthwaite, Tarkowski, Alcaraz, Olayiwola (miðjumaður), George, Johnson, Graham.

Sem sagt, nokkuð sterk uppstilling — ekki alveg sú sterkasta, en ekki mjög langt frá því heldur.

Róleg byrjun á leiknum, Everton nokkuð meira með boltann í fyrri hálfleik (58%-42%) og með samtals 8 tilraunir (og þrjár á markið) — Wolves með ekkert skot á rammann, úr tveimur tilraunum. Wolves liðið var hins vegar fljótara að komast í takt við leikinn. Fyrsta skotið frá þeim á 6. mínútu, langt utan af velli, úr akukaspyrnu, en lítil hætta. Pínulítið flatt andrúmsloftið fyrstu 10 mínúturnar, en eftir það virtist Everton vera að ná undirtökunum.

Stuttu síðar sást til forsætisráðherrranna tveggja, Andy Burnham (Englandi) og Mark Carney (Kanada) í heiðursstúkunni, enda báðir yfirlýstir Everton stuðningsmenn. Hversu oft hefur það gerst að forsætisráðherrar tveggja landa, eru — ekki bara stuðningsmenn — heldur eldheitir yfirlýstir stuðningsmenn sama liðsins og mæta á völlinn til að styðja sitt lið? Hvað þá á sama tíma! Gaman að því!

O’Brien var ekki langt frá því að lauma inn bolta inn fyrir fjærstöng með skalla eftir hornspyrnu Everton á 29 mínútu!

Rólegt um að litast eftir það, þangað til rétt fyrir lok fyrri hálfleiks, þegar Everton jók svolítið pressuna. Grealish átti skot frá D-inu, en skotið beint á markvörð þeirra. Annað skot Everton á rammann í fyrri hálfleik — man reyndar ekki hvert fyrra skotið var. Wolves með ekkert skot sem rataði á rammann (í öllum hálfleiknum, eins og nefnt var).

Þremur mínútum var bætt við og örskömmu síðar fékk Everton dauðafæri. Garner var vinstra megin í teig, utarlega, og sendi geggjaða háa sendinu á Barry, sem var óvaldaður á fjærstöng og hann náði frábærum skalla sem markvörður einhvern veginn náði að slengja hendi í, þó hann væri á leiðina í hina áttina. „Absolute worldy [save]!!“ hrópuðu ensku þulirnir! Langbesta færi leiksins fram að því.

0-0 í hálfleik.

Líkt og í upphafi leiks, byrjaði hálfleikurinn rólega. Wolves komust í skyndisókn á 54. mínútu og fengu sitt besta færi í leiknum, þegar sóknarmaður þeirra, Armstrong, komst í skotfæri inni í teig, en Pickford varði skotið meistaralega.Barry fór svo út af fyrir Brennan Johnson á 58. mínútu og Johnson var þar með kominn í framlínuna — og sá fékk aldeilis dauðafæri á 64. mínútu! Dibling sendi frábæra stungusendingu inn í teig hægra megin. í hlaupaleiðina hjá Johnson, sem náði skoti í fyrstu snertingu, en markvörður Wolves varði meistaralega og hélt þeim (aftur!) inni í leiknum.

Alcaraz og George komu svo inn á fyrir Hackney og Grealish á 77. mínútu og þeir komu strax með góða innspýtingu inn í leikinn. George átti fína spretti upp kantinn, en meira máli skipti að aðeins þremur mínútum eftir skiptinguna var Alcaraz búinn að koma Everton yfir! Alcaraz fékk boltann inni í teig frá Dibling, lék á varnarmann Wolves og lagði boltann framhjá markverði Wolves, sem kom engum vörnum við — í þetta skiptið!

Það lifnaði aðeins yfir Wolves við markið, en bara í stuttan tíma. Þeir náðu skoti á mark, á 83. mínútu, eftir smá darraðadans inni í teig, en skotið var utan teigs, beint á Pickford. Meiri var ógnun þeirra ekki og Everton landaði sigrinum og er komið áfram í bikarnum!

2 Athugasemdir

  1. Finnur Thorarinsson skrifar:

    Þetta var pínu erfitt en gott að klára þennan leiik með sigri.

    Drátturinn í næstu umferð er í heild sinni hér að neðan (deild innan sviga):

    Everton – Newcastle
    Bournemouth – Aston Villa
    Fulham – Crystal Palace
    Bradford City (3) – Peterborough United (3)
    Liverpool – Chelsea
    Sunderland – Brentford
    Manchester City eða Norwich City (2) – Brighton
    Fleetwood Town (4) – Arsenal

  2. Orri skrifar:

    Hann var langsóttur sigurinn ì þessum leik en það hafðist.

Leave a Reply