Mynd: Everton FC.
Everton mætir til London í fjórðu umferð ensku úrvalsdeildarinnar til að eigast við Tottenham en með sigri gæti Everton hoppað upp fyrir Hull City, sem sitja í augnablikinu í meistaradeildarsæti. Ekki átti maður von á því að skrifa þá setningu nokkurn tímann, en það er greinilega ekkert ómögulegt! Everton hefur ekki tapað leik á tímabilinu en því er öfugt farið hjá Tottenham, sem eru sigurlausir með markatöluna 0-5 — ef frá er skilinn deildarbikarleikur, fyrr á tímabilinu, þegar þeir unnu Charlton úr B-deildinni. Þetta verður þó erfitt verkefni, á þeirra heimavelli og getur farið á hvorn veginn sem er.
Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Branthwaite, Tarkowski (fyrirliði), Maitland-Niles, Garner, Armstrong, George, Dewsbury-Hall, Johnson, Barry.
Varamenn: Travers, King, Keane, O’Brien, Hackney, Alcaraz, Dibling, Grealish, Graham.
Tottenham mun sprækari fyrstu 20 mínúturnar, án þess að fá mikið meira en hálffæri. Fengu eitt ágætis færi eftir háa aukaspyrnu á fjærstöng, en varnarmaður þeirra setti boltann yfir slána. Annars voru mikið að taka of margar snertingar inni í teig og missa boltann.
Þeir áttu eitt cheeky skot innan teigs á 34. mínútu frá Andy Robertson, þar sem hann þóttist ætla að senda fyrir en skaut í staðinn á mark, en Pickford sá við honum.
Everton náði fínu skoti á mark, rétt fyrir hálfleik, þegar Garner tók aukaspyrnu beint á mark en markvörður varði í horn.
0-0 í hálfleik.
Tottenham áttu sitt fyrsta skot á rammann í upphafi seinni hálfleiks, en skotið utan teigs og arfaslakt.
Everton fékk hins vegar dauðafæri á 48. mínútu, þegar Barry náði skalla á mark, alveg upp við markið, en Kinsky fékk boltann í andlitið og „varði“ þar með í horn. Tottenham menn heppnir þar.
Grealish kom inn á fyrir George á 64. mínútu, en aðeins mínútu síðar gerði Kinsky, í marki Tottenham, sig sekan um skelfileg mistök, þegar hann reyndi sendingu út úr teig, beint á Dewsbury-Hall, sem brunaði í átt að marki, en Kinsky gerði vel að verja skotið. Tottenham menn stálheppnir þar.
Everton fékk dauðafæri á 75. mínútu eftir flott samspil ansi marga Everton manna, sem endaði með skoti frá óvölduðum Brennan Johnson, óvaldaður gegn sínu fyrra liði, en hann náði ekki góðu skoti heldur sneiddi boltann yfir og framhjá. Illa farið með gott færi.
Hackney og O’Brien inn á fyrir Johnson og Maitland-Niles á 74. mínútu.
Tottenham náðu fínu skoti á mark á 87. mínútu, sem Pickford varði glæsilega í horn, sem ekkert kom út úr.
En ekki urðu færin fleiri. 0-0 því niðurstaðan.


Tottenham hefur ekki unnið leik og ekki skorað mark…..hvað gæti mögulega klikkað?
Gott stig í dag. Fékk góðan Everton gest frá Seyðisfirði (Sveinbjörn Orra) í heimsókn og horfðum við saman á leikinn. Eftir leikinn var fínt viðtal við Tarkowski fyrirliða og síðan stuttu síðar við þá tvo Jarrad Branthwaite og Vitaly Mykolenko en JD afhenti VM verðlaun frá skysport fyrir að vera maður leiksins.
Eftir 4 leiki erum við með 7 stig sem er góð byrjun. Tvisvar sinnum hreint mark og taplausir!
Áfram Everton!
Ef okkar menn hefðu haft bara smá bit í sóknarleiknum í þessum leik, þá hefðu þeir unnið. Spurs geta ekkert ennþá og ef við hefðum náð að skora þá hefðu þeir líklega hrunið eins og spilaborg. Mér fannst George og Johnson ekki góðir í þessum leik og var ekki hissa á að þeim var skipt út af. Mér finnst það samt athyglisvert, og jafnvel áhyggjuefni að Hackney kom inn fyrir Johnson en ekki Dibling, og mig er farið að gruna að hann sé dýrt flop.
Sælir félagar er einhvet að horfa á everton woles í dag