Everton – Manchester United 2-2

Mynd: Everton FC.

Góðum aðalfundi Everton á Íslandi var að ljúka og nú er komið að leik Everton við Manchester United.

Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Branthwaite, Tarkowski (fyrirliði), Röhl, Garner, Armstrong, George Dewsbury-Hall, Johnson, Barry.

Varamenn: Alcaraz, Dibling, Graham, Grealish, Hackney, Kean, Maitland-Niles, O’Brien, Travers.

Leikurinn eiginlega hófst á því að Maguire þurfti langa aðhlynningu, þannig að þetta var rólegt í upphafi.

Bruno Fernandes átti svo skot utarlega í teig, en hitti boltann illa og skotið því í ofanverða stöngina og út af.

Stórt tækifæri leit dagsins ljós hjá United á 21. mínútu þegar Rashford lék á Röhl og skapaði skotfæri með lágri sendingu út í teig en Cunha hitti sem betur fer ekki markið.

Everton meira með boltann en United beittari, og Everton líklega sáttara liðið við 0-0 en United.

En Everton fékk eftir það dauðafæri, þegar Brennan Johnson sendi frábæra háa sendingu fyrir markið, beint á Barry, sem rétt skallaði yfir. Besta færi alls fyrri hálfleiks hjá báðum liðum.

Everton átti einnig næsta skot á mark, eftir langt innkast þar sem Maguire var með Tarkowski í górillugripi inni í teig, en Tarkowski náði að skalla til Branthwaite, sem skaut föstu lágu skoti á markið, en markvörður varði.

0-0 í hálfleik.

United byrjuðu seinni hálfleik af miklum krafti og áður en tvær mínútur voru liðnar var Mbuemo búinn að skora. Hann fékk óáreittur að fara með boltann frá hægri kanti inn í áttina að D-inu og skjóta niðri í vinstra hornið hjá Pickford. 0-1 fyrir United.

Everton var ákafara liðið eftir markið og virkuðu líklegri, en það þurfti geggjaða tæklingu Tarkowski, innan teigs, til að koma í veg fyrir dauðafæri United upp við mark. United menn vildu viti, en þögnuðu þegar þeir sáu endursýningu.

Grealish kom inn á fyrir Johnson á 66. mínútu og Hackney fyrir Röhl. Garner þar með settur í hægri bakvörð, en hann entist bara í um mínútu þar, og var svo skipt út af fyrir Maitland-Niles, vegna meiðsla. Fyrsti leikur hans með Everton og það átti aldeilis eftir að draga dilk á eftir sér. Pickford kominn út úr boxinu að skipta sér af skiptingunum. Spes.

Everton átti ágætis tilraun á mark á 81. mínútu, eftir háa aukaspyrnu frá vinstri kanti, sem Branthwaite stýrði með skalla á mark.

En jöfnunarmarkið kom á 82. mínútu og það kom skyndilega. Hackney fann George hægra megin í teignum og hann, óvaldaður, átti geggjað fast skot upp í samskeytin hægra megin, sem markvörður náði hendi á, en skotið of fast og inn. Staðan orðin jöfn, 1-1!

En United komust yfir jafn harðan. Hár bolti fyrir frá vinstri, á Sesko sem var milli miðvarðapars Everton. Tarkowski var hársbreidd frá því að ná að skalla frá, en missti af boltanum og Sesko náði skalla á mark. Pickford varði meistaralega en boltinn lak því miður inn. Staðan orðin 1-2.

En Everton gafst ekki upp og skoraði jöfnunarmark á lokasekúndunum! Smá darraðadans í teignum, sem endaði með því að boltinn barst út í teig til Maitland-Niles, sem setti hann innanfótar, upp í samskeytin vinstra megin! Geggjað mark! Velkomin til Everton, Maitland-Niles!! Staðan þar með orðin jöfn, 2-2!

Og þannig fór sá leikur! Everton liðið enn taplaust á tímabilinu eftir fjóra leiki! Vel gert!

4 Athugasemdir

  1. AriG skrifar:

    Frábær leikur geggjuð mörk hjá Everton. Fínn aðalfundur góð mæting. Takk fyrir mig. Þið standið ykkur eins og hetjur stjórnin og aðrir sem hjálpa til. Góð mæting.

  2. Eirikur skrifar:

    Áttum skilið stig og fengum það með tveimur frábærum mörkum.
    Fannst Hackney koma flottur inn og Grealish líka. Og nýjasti maðurinn byrjað heldur betur vel. Held að við verðum í fínum málum ef að við sleppum við meiðsli fram að áramótum.
    Komst því miður ekki á fundinn enn sjáumst vonandi á vellinum í vetur.

  3. Diddi skrifar:

    Man utd tapaði stigum segir mbl ha ha ha

  4. Halli skrifar:

    Takk fyrir komuna og mætinguna á aðalfundinn í dag. Við jöfnum tvisvar og þvílíkt seinna mark frá manni sem er að spila sínar fyrstu mínútur. Ég fór sáttur heim í dag

Leave a Reply