Félagaskiptaglugginn – sumar 2026 (opinn þráður)

Mynd: Everton FC.

Félagaskiptaglugginn í ensku úrvalsdeildinni opnaði mánudaginn 15. júní 2026 og honum lýkur þriðjudaginn 1. september 2026 klukkan 22:00 að íslenskum tíma (23:00 að breskum tíma). Þessum þræði er ætlað að halda utan um staðfest kaup og sölur hjá Everton ásamt helstu fréttum og sögusögnum. Allar tölur eru í breskum pundum hér að neðan, nema annað sé tekið fram.

Afraksturinn hingað til:

Leikmenn komnir:

  • Ainsley Maitland-Niles (Lyon, ótilgreind upphæð)
  • Jack Grealish (Manchester City – lán)
  • Brennan Johnson (Crystal Palace – bein skipti á Dwight McNeil)
  • Christian Nørgaard (Arsenal – £7M)
  • Hayden Hackney (Middlesbrough – £16.5M + allt að £8.5M í árangurstengdar greiðslur)
  • Tyrique George (Chelsea – kaupréttur virkjaður fyrir £24M)
  • Merlin Röhl (SC Freiburg – lánssamningur gerður varanlegur fyrir £19M)

Leikmenn farnir:

  • lliman Ndiaye (Man City, 60M punda, plús 5M árangurstengt).
  • Tim Iroegbunam (Hull, ótilgreind upphæð)
  • Nathan Patterson (Torino, ótilgreind upphæð)
  • Beto (Fiorentina fyrir um 15M punda)
  • Adam Aznou (lánaður til Malaga til loka tímabils)
  • Joel Catesby (U21) (lánaður til Accrington Stanley)
  • Dwight McNeil (Crystal Palace – skiptidæmi gegn Brennan Johnson)
  • Idrissa Gana Gueye (samningslok)
  • Seamus Coleman (samningslok)
  • Tyler Onyango (samningslok)

Framlengdir samningar:

  • Vitalii Mykolenko (framlengdi til júní 2029)


Fréttir og tilkynningar í öfugri tímaröð (nýjast efst):

23:26 Skv. BBC verður ekkert af kaupunum á Folarin Balogun og þar með er fréttum af þessum félagaskiptaglugga líklega lokið. Góða nótt.

23:00 Everton staðfesti kaup á fyrrum enska landsliðsmanninum, Ainsley Maitland-Niles, frá Lyon, fyrir ótilgreinda upphæð.

22:23 Skv BBC er enn verið að vinna í því að klára félagaskiptin vegna Balugon. Aðeins um hálftími eftir af frestinum sem er gefinn fyrir pappírsvinnuna.

22:00 Við erum komin að lokum félagaskiptagluggans, plús náttúrulega þennan klukkutíma sem félögin hafa til að klára þá samninga sem voru í vinnslu þegar glugginn lokaði.

21:49 Skv. BBC kláraði Ainsley Maitland-Niles læknisskoðun sína hjá Everton. Everton hefur þó ekki tilkynnt kaupin, en það gerist væntanlega á næstu mínútum.

21:39 Skv. BBC er Everton að reyna að semja um að gera greiðsluna fyrir Balugon meira árangurstengda, í ljósi þess að hann stóðst ekki læknisskoðun.

21:25 BBC segir að Everton hafi sýnt sóknarmanni Aston Villa, Tammy Abrahams, áhuga en að hann vilji vera áfram hjá Aston Villa.

21:14 Jack is back! Everton staðfesti rétt í þessu lánssamning á Jack Grealish til loka tímabils, sem er einnig þegar samningur hans við Manchester City rennur út — heppilegt.

21:10 Sky Sports segja nú að United hafi hafnað lánstilboði Everton í sóknarmanninn Joshua Zirkzee.

21:00 Everton staðfesti sölu á Tim Iroegbunam til Hull fyrir ótilgreinda upphæð.

20:56 Sky Sports uppfærðu frétt sína um Joshua Zirkzee og sögðu að um lán í eitt tímabil væri að ræða, með séns á kaupum þar á eftir. Mögulega hugsað til vara, ef ekki Balugon kaupin ganga ekki upp — erfitt að segja.

20:30 Everton staðfesti sölu á Iliman Ndiaye til Manchester City fyrir ótilgreinda upphæð. BBC og Sky vilja þó meina að upphæðin sé 60M punda og 5M árangurstengdar. Þess má geta að Everton keypti hann frá Marseille fyrir tveimur árum fyrir um 15-16M punda. Ansi góð ávöxtun þar.

20:04 Sky Sports segir að Everton hafi boðið í Joshua Zirkzee hjá Manchester United, en að enn sé verið að semja við Monaco.

20:01 BBC segir að salan á Ndiaye fyrir 60M punda (plús 5M árangurstengdar) til Manchester City hafi gengið í gegn.

19:55 BBC segja að ástæða þess að snuðra hljóp á þráðinn varðandi Balugon hafi verið sú að hann hafi ekki staðist læknisskoðun. Kannski er meiningin að semja um að lækka verðið á honum eða setja einhverja klausu í samninginn til að tryggja hagsmuni Everton. Sjáum til.

19:42 BBC segir núna að ekki sé víst með kaupin á Balogun frá Monaco.

19:09 Everton staðfesti að Nathan Patterson hefði verið seldur til Torino, fyrir ótilgreinda upphæð.

17:12 Ainsley Maitland-Niles er víst mættur í læknisskoðun á Finch Farm, skv. Sky Sports.

17:10 Everton staðfesti að salan á Beto til Fiorentina, sé gengin í gegn. Söluverðið var ekki gefið upp en BBC sögðu að það væri 14.6M en Sky Sports sögðu 15.4M punda.

12:20 Skv. BBC hafnaði Everton tilboði West Ham í Michael Keane.

11:15 Sky Sports segir að Everton hafi náð samningum við Lyon um kaup á fyrrum enska landsliðsmanninum, Ainsley Maitland-Niles, en hann er hægri bakvörður. Maitland-Niles er 29 ára og kaupverðið er sagt 4.2M punda. Bæði Sky Sports og BBC segja að ólíklegt sé að Everton muni einnig kaupa Kenny Tete frá Fulham ef af þessum kaupum verði.

10:53 BBC segir (líkt og Sky Sports) að sóknarmaðurinn Folarin Balugon fari í læknisskoðun hjá Everton í dag.

09:33 Sky Sports segir að ólíklegt sé nú að Richarlison endi hjá Everton og að hann sé að skoða að fara til Sádi-Arabíu.

09:15 Iroegbunam er í læknisskoðun hjá Hull, með fyrirhugaða sölu í huga.

07:18 Fulham eru að leita að einhverjum til að taka við af Kenny Tete, sem Everton bauð 9.4M í og Nathan Patterson ku vera á leið til Torino í læknisskoðun, með fyrirhugaða sölu í huga.

06:47 Skv. Sky Sports hefur Jack Grealish fengið leyfi til að fara í læknisskoðun hjá Everton. Um er að ræða lán til loka tímabils, en Grealish er á síðasta ári síns samnings við City og gæti því farið á frjálsri sölu til Everton að því loknu.

06:00 Þá er komið að lokadegi þessa félagaskiptaglugga og það lítur út fyrir þó nokkrar breytingar. Everton hefur þegar staðfest fréttir um að Adam Aznou hefði verið lánaður til Malaga til loka tímabils. Einnig var staðfest að Joel Catesby (úr U21 árs liðinu) hefði farið á láni til Accrington Stanley.

— ^ DEADLINE DAY ^ —

2026-08-31 20:38: Skv. Sky Sports eru Hull að kaupa Tim Iroegbunam frá Everton. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

2026-08-31 19:52: Skv. Sky Sports hefur Everton náð samkomulagi um að kaupa Monaco sóknarmanninn Folarin Balogun fyrir 40M punda.

2026-08-31 Hellingur búinn að gerast nýverið. Til stóð að selja Harrison Armstrong á 40M punda til Nottingham Forest, en það varð allt vitlaust meðal stuðningsmanna Everton og því var hætt við þá sölu. Vonandi reynist það félaginu vel. Mikið af öðrum mögulegum Everton félagaskiptum voru einnig í fréttum: Tete (hægri bakvörður) nefndur sem möguleg kaup frá Fulham, Ndiaye mögulega seldur (til Tottenham fyrir 60M) og Richarlison mögulega keyptur frá þeim í staðinn (samt ekki talið háð sölu á Ndiaye). Richarlison var svo sagður „ekki hafa náð samningum við Everton“ en að „þeim viðræðum væri ekki lokið“. Hann vill allavega fara frá Tottenham og gaf frá sér skrýtna Instagram færslu þar sem hann sagði „I am the villain of many poorly told stories“. Allt mög spes einhvern veginn. Svo var Jack Grealish náttúrulega orðaður við Everton aftur, en þær fréttir fá væntanlega byr undir báða vængi þar sem fréttist (BBC) að Everton hefði samþykkt 60-65M punda tilboð Manchester City í Ndiaye, sem myndi þá mögulega þýða að City hefðu ekki lengur áhuga á Gakpo hjá Liverpool. Svo birtist allt í einu frétt um að Everton hefði boðið í Balogun, sóknarmann Monaco, en að enn væri möguleiki líka á að kaupa Richarlison frá Tottenham. Kaupin á Balogun væru skilyrt því að Beto færi til Fiorentina (á 15.5M punda). Svo sagði Sky Sports að Fulham hefðu samþykkt 9.4M punda tilboð Everton í áðurnefndan bakvörð Tete, en það hefur ekki verið staðfest.

2026-08-08 Everton og Crystal Palace gengu frá skiptidæmi þess efnis að kantmaðurinn Brennan Johnson kemur til Everton frá Selhurst Park á meðan Dwight McNeil fer í hina áttina til London. (Heimild: Everton FC)

2026-08-05 Everton staðfesti kaup á reynslumikla danska miðjumanninum Christian Nørgaard frá Arsenal fyrir tæpar 7M punda til að styrkja miðsvæðið. (Heimild: BBC Sport, Everton FC)

2026-07-02 Everton gekk frá kaupum á enska miðjumanninum Hayden Hackney frá Middlesbrough fyrir tæpar 16.5M punda, sem gætu hækkað í 25M punda með árangurstengdum greiðslum. (Heimild: BBC Sport, Everton FC)

2026-07-01 Félagið virkjaði kaupákvæði í lánssamningum tveggja leikmanna og gerði félagaskipti þeirra varanleg: Tyrique George frá Chelsea fyrir 24M punda (heimild: Everton FC) og Merlin Röhl frá SC Freiburg fyrir 19M punda (heimild: Everton FC). Þá var unglingalandsliðsmaðurinn Arthur Barratt einnig keyptur frá akademíu Chelsea (heimild: Fabrizio Romano á Twitter) en setja verður spurningamerki við þá frétt þar sem þær hafa ekki fengist staðfestar af áreiðanlegum fréttamiðlum.

2026-06-30 Í lok júní runnu út nokkrir samningar við leikmenn, sem eru því á brott, en í þetta skiptið eru það Idrissa Gana Gueye, fyrirliðinn Seamus Coleman og Tyler Onyango sem kvöddu félagið formlega eftir að samningar þeirra runnu út. (Heimild: Everton Transfer Tracker)

2026-06-08 Vinstri bakvörðurinn Vitalii Mykolenko skrifaði undir nýjan þriggja ára samning við Everton, sem heldur honum hjá félaginu til júníloka árið 2029 (heimildir: ToffeeWeb, Everton FC).

11 Athugasemdir

  1. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Jæja þá! Það er kominn 16. ágúst, korter í mót og enn enginn hægri bakvörður keyptur. Það vita allir og amma þeirra að Everton vantar hægri bakvörð, og hefur vantað síðustu fimm árin eða svo, samt er ekkert gert í að leysa þetta vandamál og það þykir mér vera argasta vanræksla. Ég veit að Everton eru voða spenntir fyrir Guela Doue frá Strassbourg, en hann er bara ekkert spenntur fyrir Everton svo ég trúi því ekki að menn séu ennþá að reyna að sannfæra hann um að koma. Juanlu Sanches er farinn frá Sevilla til Bournemouth á skitin níu milljón pund, leikmaður sem Everton hefur amk tvisvar verið nálægt því að kaupa en hætt við einhverra hluta vegna í bæði skiptin.
    Mér finnst reyndar að um leið og fréttist að Bournemouth hafi áhuga á einhverjum leikmanni, þá eigi að skoða þann leikmann því Bournemouth kaupir ekki drasl.
    Úr því sem komið er þá er ég orðinn nokkuð viss um að Everton kaupi engan í þessa vandræðastöðu á vellinum og O’Brien og Röhl verða látnir spila þarna, og það verður ekki gott fyrir neinn, nema auðvitað andstæðinganna.
    Vonum það besta samt.

  2. Gestur skrifar:

    Það er svo pirrandi þetta getuleysi hjá Everton. Meðalmennskan eða minna en það er talið nóg.

  3. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Lokadagur á morgun, hvert ætli Armstrong fari eða Ndiaye, nú eða O’Brien?
    Það er nokkuð augljóst að eigendur Everton hafa engan metnað eða áhuga á að koma félaginu aftur í fremstu röð, fyrst þeir eru alveg tilbúnir til að selja Ndiaye, sem er líklega okkar besti maður, og Armstrong sem er trúlega efnilegasti leikmaður sem hefur komið upp úr unglingastarfinu síðan Rooney.
    Og þó svo að það hafi verið hætt við söluna á Armstrong til Forest, þá þýðir það ekki að hann verði ekki seldur áður en glugginn lokar annað kvöld. Nú vita allir að hann er til sölu og fyrir hvaða verð.
    En hey! Við erum víst alveg að fá hægri bakvörð, eða svo er sagt. Og það er enginn annar en eini hægri bakvörður heims, sjálfur Kenny Tete. VÁ!! Við erum bara að fara að vinna allt er það ekki??
    Týpískt Everton að eyða öllum glugganum í að reyna að fá einhvern sem vill ekki koma og enda svo með að kaupa einhverja varaskeifu frá Fulham sem við hefðum getað fengið frítt í fyrra og er meira og minna meiddur.
    Af hverju í fjandanum getur þessi helvítis skítaklúbbur ekki fundið leikmenn utan Englands eins og allir aðrir. Gjörsamlega óþolandi.

  4. Finnur Thorarinsson skrifar:

    Hmm… Það er kannski fullmikið að halda því fram að Everton sæki aldrei leikmenn utan Englands, sérstaklega í ljósi þess að Ndiaye kom frá Marseille fyrir ekki meira en 15M punda. Ágætis hagnaður þar á ferðinni, ef af sölu verður nú…

    Hér er annars yfirlit síðustu þriggja sumarglugga, þar sem sjá má að meðaltalið sýnir að tveir leikmenn hafa verið keyptir frá liðum utan Englands á hverju ári:

    2026: Merlin Röhl (frá SC Freiburg).
    2025: Charly Alcaraz (frá Flamengo).
    2025: Thierno Barry (frá Villareal).
    2025: Adam Aznou (frá Bayern Munchen).
    2024: Ilim­an Ndiaye (frá Marseille).
    2024: Jake O’Brien (frá Lyon).

    Og í þessari upptalningu eru ekki þeir sem félagið var til í að prófa á láni (með möguleika á að kaupa ef þeir myndu standa sig), eins og Orel Mangala (Lyon) og Jesper Lind­ström (Napoli). Mig grunar að sá fyrrnefndi hefði líklega verið keyptur (hann var kominn í byrjunarliðið) ef hann hefði ekki slitið krossbönd (ACL). Þá reyndist ágætt (fyrir Everton) að hann væri bara á reynslu.

  5. Ari S skrifar:

    Góðan daginn, ég var orðinn þreyttur í gær og fór snemma að sofa. Ájvað að klára ekki gluggann góða þegar ljóst var að Balogoun myndi ekki koma.

    Nokkuð góður gluggi á sumum sviðum en fáránlega lélegur á öðrum sviðum.

    Sölurnar fínar þó ég persónulega vildi fá meira fyrir Ndiaje. En þar sem hann var keyptur fyrir 15 milljónir punda fyrir 2 árum þá erum við með 50 milljón punda hagnað sem er gott. Tim, Beto og Patterson seldir og vonandi gengur þeim vel. Núna getur maður farið að fylgjast með Torino en Nathan Patterson fór þangað.

    Við erum áfram berskjaldaðir á sumum sviðum. Að fá ekki hægri bakvörðinn enn og aftur er gjörsamlega óásættanlegt eins og sumir myndu segja þó að ég sem áhugamaður um fótbolta og Everton verð að sætta mig við… Að vera með bara einn vinstri bakvörðinn er ekki gott heldur og að vera með Barry sem eina sannarlega framherja er fáránlegt finnst mér.

    Kinnar verður að svara fyrir þetta og eigendurnir verða lika að koma fram og segja eitthvað við stuðningsmenn. Það að hafa látið grípa sig í bólinu og samþykkja söluna á Harrison Armstrong segir okkur allt sem segja þarf um áhuga þeirra á Everton. Þó að þeir hafi brugðist vel við hörðum viðbrögðum stuðningsmanna eftir sölufréttir á Armstrong þá voru þeir opinberaðir og það má segja að þeir hafi verið rassskelltir af stuðningsmönnum Everton og salan dregin til baka. Þetta verður þeim ekki fyrirgefið ef þeir hafa áhuga á að eiga Everton áfram þá verða þeir að sýna sig.

    Ég er hættur í bili, frábær miðja hjá Everton en ekki meira. Brennan Johnson getur spilað sem striker og Braden Graham getur lika komið inn þar. Vonandi stendur Ansley Maitland-Niles segja vel og þá erum við í nokkuð góðum málum.

    Kær kveðja,

    Ari S

    • Ari S skrifar:

      …….smá viðbót. ég gúgglaði nokkra sem eru a´frjásri sölu og það kiom eitt nafn upp… í sambandi við „strikerinn“ og það var…. Jamie Vardy! Hann er 39 ára og ef hann er í líkamlegu formi þá væri hægt að bjóða honum samning fram í Janúar… nei ég segi svona…

      • Ari S skrifar:

        …og David Alaba er líka laus… gæti verið í hægri bak ef að Ainsley Maitland-Niles klikkar…

  6. Gestur skrifar:

    Þessi gluggi er alveg galinn fyrir Everton, Moyes talaði um að það vanti fleiri leikmenn inn en endar á því að vera með þynnri hóp.
    Og selja okkar besta mann og fá gamlingja inn í staðin. Þetta verður erfiður vetur.

  7. AriG skrifar:

    Góður gluggi að mörgu leiti. Ég hef ekki miklar áhyggjur af sókninni. Hef heyrt að Karin Benzema sé á lausu en ég efast um að hann mundi nenna að koma til Everton. Alltaf hægt að reyna að fá einhvern á frjálsum markaði. Everton hefur nóg af vængmönnum svo sem George eða Dibling nota hann meira kominn tími til. Geta alltaf leyst sóknarstöðina af tímabundið. Finnst mjög gott að hreinsa vel til og lækka launakostnað. Hef engar áhyggjur af sókninni en hefði auðvitað viljað kaupa einn bakvörð í viðbót þá hefði þetta verið allt í lagi. Ekki alltaf lausnin að kaupa of marga í einu það hefur oftast ekki virkað. Dibling kostaði ca 40 millur algjört bull að nota hann ekkert en núna er tækifærið fyrir hann í sóknina t.d. Kannski gott að Balogun kom ekki einhver vandræðamaður fyrst hann hagar sér svona. Við eigum að hætta að tala Everton niður og vera bjartsýnir. Fín innkaup sem komu nema ekki viss með Danann kemur í ljós.

  8. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Hvað er íslenska heitið yfir asset stripping? Því það er akkúrat það sem Fraudkin fíflin eru að gera.
    Þessi gluggi var eitt stórslys frá fyrsta degi og það eina sem virðist hafa verið eitthvað pínulítið planað eru kaupin á Hackney og lánið á Grealish, hitt er allt voðalega tilviljanakennt og augljóst að þessi innkaupanefnd, eða hvern fjandann þessi fífl vilja láta kalla sig, hefur hugmyndaflug á við teskeið. Eða er einhver sem trúir því að AMN hafi verið ofarlega á innkaupalistanum þegar farið var í að reyna að kaupa hægri bakvörð? Ég ætla að voga mér að halda að hann hafi ekki einu sinni verið á neinum lista.
    Og svo er maður að sjá það í dag að Fraudkin fíflin séu að reyna að selja hlut í félaginu til að fá meiri pening í reksturinn, samt er nýbúið að segja okkur að félagið sé vel rekið og allar peningaáhyggjur séu að baki. Það er bara kjaftæði! Lygar og kjaftæði. Moshiri var ekki góður eigandi, en hann hafði þó að minnsta kosti metnað.
    Við erum eina félagið í deildinni sem er með veikari leikmannahóp eftir gluggann heldur en áður en hann opnaði. Þrír markverðir og 18 útileikmenn, þar af bara einn framherji, einn vinstri bakvörður og enginn hægri bakvörður AMN er miðjumaður sem getur spilað bakvarðarstöðuna, við vorum með tvo þannig fyrir. Ein meiðsli og við erum í djúpum skít. Það eina sem mögulega gæti bjargað þessu tímabili, og ég trúi varla að ég skuli segja þetta, er David Moyes. Hann má eiga það að hann nær yfirleitt að þjappa mönnum saman og ná því besta úr mönnum þegar liðið er komið með bakið upp að vegg. Vonandi tekst það hjá honum.

Leave a Reply