Mynd: Everton FC.
Þá er biðin á enda og enska úrvalsdeildin komin aftur af stað! Opnunarleikur Everton var á heimavelli gegn Crystal Palace, og spennan var farin að magnast. Bæði lið hafa verið nokkuð varfærin á leikmannamarkaði hingað til, Everton fékk til sín þrjá nýja leikmenn, Hayden Hackney, Brennan Johnson (frá Crystal Palace), og Christian Nørgaard og notaði tækifærið og breytti láni á tveimur leikmönnum í kaup (Tyrique George og Merlin Röhl). Crystal Palace fengu til sín Dwight McNeil (eins og við þekkjum) og að auki tvo hægri bakverði (þá Anan Khalaili á 24.5M Evra og Óscar Mingueza á frjálsri sölu) og hægri kantmann (Zavier Gozo á 13M Evra). Þeir misstu hins vegar lykilmann úr vörninni frá síðasta tímabili, Maxence Lacroix, til Chelsea.
Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Branthwaite, Tarkowski (fyrirliði), Röhl, Hackney, George, Dewsbury-Hall, Armstrong, Ndiaye, Barry.
Varamenn: Travers, O’Brien, Keane, Patterson, Alcaraz, Garner, Johnson, Dibling, Beto.
Fyrir leik var talað um að Nørgaard, Iroegbunam, og Garner myndu missa af þessum leik vegna meiðsla, en Garner er á bekknum, sem er gott að sjá, enda reyndist hann okkur drjúgur á síðasta tímabili. Brendan Johnson byrjar á bekknum, en McNeil er í byrjunarliðinu fyrir Crystal Palace. Þessi uppstilling Everton er annars nokkuð hefðbundin, fjögurra manna varnarlína með líklega eitthvað í átt við 4-1-4-1 uppstillingu með Hackney djúpan, spái ég, og Barry frammi. Útsendingin vildi reyndar meina að þetta væri 4-3-3. En þá að leiknum…
Rólegar fyrstu mínútur leiksins, ef frá er skilin ein varnarmistök hjá Tarkowski, sem átti slakan skalla aftur, sem sóknarmaður komst inn í og skapaði færi fyrir Mateta upp við mark, en hann lúðraði boltanum hátt yfir, sem betur fer.
Næsta færið var einnig frá Crystal Palace, á 11. mínútu, en skotið slakt, beint á Pickford.
Everton fékk svo fínt skotfæri 11. mínútu, eftir flott samspil Röhl og Ndiaye á hægri kanti og inni í teig, þar sem sá fyrrnefndi lagði upp skot fyrir Ndiaye, en markvörður varði vel.
Á 17. mínútu fengu Palace menn svo dauðafæri, eftir háa sendingu yfir varnarlínu Everton, sem sóknarmaður Palace tók vel á móti, og náði skoti á mark, en Pickford með landsliðsvörslu í stöng og út af.
Á 24. mínútu hélt maður að Everton væri að fá víti, þegar Branthewaite var augljóslega sparkaður niður inni í teig, en því miður var hann (réttilega) dæmdur rangstæður.
George einnig dæmdur rangstæður á 34. mínútu, eftir að hafa náð skoti á mark innan teigs, rétt framhjá fjærstöng.
Palace menn komust í skyndisókn á 37. mínútu sem endaði með því að Nketia fann Mateta upp við mark en sá setti boltann í stöngina í algjöru dauðafæri. Everton liðið stálheppið að vera ekki undir í leiknum.
En Everton svaraði með marki á 42. mínútu. Armstrong stal boltanum af hægri bakverði Crystal Palace, sendi á Dewsbury-Hall, sem hlóð í þrumuskot innan teigs og boltinn söng í netinu, í hliðarlínu fjær (hægra megin)!
1-0 fyrir Everton! Þrjú mörk í viðbót og þá er Everton í efsta sæti deildarinnar (hah!).
Palace menn fengu skallafæri alveg undir lok fyrri hálfleiks, en leikmaður þeirra líklega rangstæður þegar hann skallaði framhjá fjærstöng.
1-0 fyrir Everton í hálfleik.
Annað mark Everton kom á 52. mínútu þegar Everton tók aukaspyrnu hratt við miðsvæðið á Ndiaye, sem sendi háan fyrir mark, beint á skallann á Barry, sem hamraði boltann inn! Tvö mörk í viðbót og Everton verða efstir! (hah!)
En þriðja markið kom næstum því strax á eftir, þegar Barry fann Ndiaye, með hárri sendingu inn í teig, og Ndiaye reyndi skot í fyrsta. Boltinn hafði viðkomu í jörðinni en rataði á rammann, og markvörður Palace þurfti að hafa sig allan við að verja. Palace menn heppnir þar.
George fékk ágætt skotfæri á 72. mínútu en ekki kom þriðja markið þar, skaut nokkuð vel framhjá.
Garner inn á fyrir Hackney og Beto fyrir Barry á 79. mínútu. Nýi maðurinn, Brennan Johnson, kom svo inn á fyrir George, á 82. mínútu.
Palace menn áttu engin svör við þessu, og manni fannst þeir hálfpartinn gefast upp undir lokin. 7 mínútum bætt við.
Smá líf í þeim undir lokin. Náðu skalla á mark að nokkuð löngu færi, en beint á Pickford. Engin hætta.
Alcaraz inn á fyrir Dewsbury-Hall á 94. mínútu. Enn tími til að skora tvö! (haha!)
Miklu meiri ákefð og barátta í liði Everton. En fleiri urðu færin ekki. 2-0 sigur staðreynd. Glæsileg byrjun á tímabilinu. Skilaboðin þegar byrjuð að streyma í símann: Hvenær verður formleg Everton ferð næst. Gaman að því!
Sky Sports gáfu ekki út einkunnir fyrir leikmenn liðana.


Ég átti nú frekar von á að O’Brien myndi byrja í hægri bakvarðaratöðunni og Röhl á hægri kanti svo ég er pínu hissa á þessari uppstillingu… en bara pínu.
Þetta fer 0-1 fyrir Palace og McNeil skorar.
Ánægður með uppstillinguna en hefði viljað hvíla Tarkowski og spila Obrian. Vinnum 3-0 Ndiay með fyrstu þrennuna í deildinni þetta tímabilið … koma svo
Gekk vel í dag
Flottur leikur hjá Everton nema smá hik í vörninni í fyrri hálfleik. Miklu betri í seinni. Öll sóknin góð George Ndiay Drewsbury og Barry. Pickford frábær. Finnst samt að Everton ætti að kaupa 2 bakverði báðum megin vinstri og hægri og 1 sókarmann þá selja Beto. Miðjan og vængmenn fínir.
Sæll Ari vill einhver Beto ?
Klárlega svona stöngin-út dagur hjá Crystal Palace í dag, en okkar menn komu vel einbeittir til leiks og uppskáru eftir því. Nú er bara að fylgja þessu eftir!
Frábært að byrja á sigri og halda hreinu
Enn við vorum heppnir í dag.
Hefðum auðveldlega getað verið komnir undir.
Enn það þarf að nýta færin og vonandi verður framhald á.
Finnst ekki koma nóg út úr uppspili okkar upp kanntana.
Enn 3 stig er alltaf gott🙌
Góðir 3 punktar ì dag.
Eg verð að segja góður leikur hja everton í dag nema mér finst vorninn hjá okkur vera svolítið godót