Stuttgart – Everton 3-1 (vináttuleikur)

Mynd: Everton FC.

Everton lék æfingaleik við þýska úrvalsdeildarliðið, Stuttgart, á þeirra heimavelli, en þessi skýrsla kemur pínu seint þar sem ritari var á ferðalagi með útlendinga um landið. 

Stuttgart enduðu í fjórða sæti í þýsku deildinni á síðasta tímabili, sem tryggði þeim sæti í meistaradeildinni á næsta tímabili. Engir aukvisar þar á ferð…

Uppstillingin: Travers, Mykolenko, Branthwaite, O’Brien, Röhl, Iroegbunam, Alcaraz, Armstrong, Hackney, Dibling, Beto.

Varamenn: King, Pickford, Aznou, Tarkowski, Keane, Patterson, McNeil, Ndiaye, George, Dewsbury-Hall, Barry, sem og úr U21 árs liðinu: Lukjanciks (markvörður), Foster (miðvörður), Campbell (miðvörður), Graham (framherji).

Athyglisvert var að sjá Branthwaite og O’Brien í miðverðinun saman, en Tarkowski byrjaði á bekknum. Þetta miðvarðarpar, sem Moyes var að prófa, entist þó ekki lengi vegna meiðsla annars staðar á velli, eins og kom í ljós síðar.

Everton var með góða stjórn á leiknunm frá upphafi og létu boltann ganga vel. Fengu auk þess tvö færi fyrsta korterið: annars vegar Beto, sem fékk eitt óvænt færi sem var varið í horn og svo átti Hackney skot frá vinstri sem fór rétt framhjá. En svo allt í einu skoruðu Stuttgart, gegn gangi leiksins, þegar þeir náðu einni langri sendingu frá vinstri til hægri, upp kantinn, og sóknarmaður þeirra komst inn í vítateig. Hann hótaði skoti, sem Branthwaite skriðtæklaði fyrir, en sóknarmaðurinn losaði sig við Branthwaite með því að hætta við (feika) skotið og þrumaði svo inn óvaldaður. Stuttgart höfðu ekki sýnt mikið fyrstu 40 mínúturnar, en náðu þó að komast 1-0 yfir eftir rúmlega 15 mínútur með sucker punch marki. Týpískt.

Á 18. mínútu fór Iroegbunam hins vegar út af vegna meiðsla og Keane kom inn á í stað hans. Keane tók við miðvarðarstöðunni af O’Brien, sem var færður í hægri bakvörð, og Merlin þar með færður á miðjuna.

Everton fékk dauðafæri á 32. mínútu þegar Röhl sendi boltann fyrir frá hægri, á Beto sem hefði sett boltann í autt netið og jafnað, ef hann hefði bara hitt tuðruna! Dibling fékk svo boltann rétt utan teigs á 35. mínútu, lagði hann fyrir sig og þrumaði í átt að marki en markvörður varði vel alveg út við stöng.

Rétt undir lok hálfleiksins fengu Stuttgart tvö hættuleg færi. Fyrst horn, á 40. mínútu, þar sem þeir sendu háan bolta fyrir mark og náðu geggjuðum skalla upp í hægra hornið en Travers varði meistaralega! Travers fékk svo á sig skot á 41. sem hann varði vel með fætinum.

1-0 í hálfleik, en Everton var með undirtökin nánast allan fyrri hálfleikinn, ef frá eru skildar síðustu fimm mínúturnar (og náttúrulega markið).

Engin breyting hjá Everton í hálfleik en tvær hjá Stuttgart, sem byrjuðu seinni hálfleik líflega og settu pressu á Travers í marki Everton. Fengu tvö eða þrjú hálffæri sem vörnin og Travers sáu við.

Eftir það, róaðist þetta aðeins og það var ekki fyrr en 10 mínútum síðar að Stuttgart reyndu skot (á 55. mínútu), rétt utan teigs en boltinn fór í utanverða nærstöng (vinstra megin) og út af. 

Á 63. mínútu fengu Stuttgart hornspynu, þrátt fyrir hávær mótmæli nokkurra Everton leikmanna, sem töldu sig (líklega réttilega) eiga að fá markaspyrnu. Moyes notaði tækifærið og gerði fjórar breytingar á liði Everton á 63. mínútu þegar Barry, George, Dewsbury-Hall, og Ndiaye komu inn á fyrir Beto, Alcaraz, Röhl, og Dibling. Þar með komin í leikinn alveg ný framlína hjá Everton. Stuttgart tóku svo hornið (sem þeir áttu ekki að fá) og skoruðu með skalla og staðan þar með orðin 2-0 fyrir Stuttgart. Markið kom aðallega vegna þess að þeir náðu að yfirmanna O’Brien á fjærstöng og fengu þar frían skalla.

Á 71. mínútu fékk Barry hins vegar víti, þegar hann fékk stundusendingu inn fyrir vörnina og markvörður tók hann niður. Dómarinn í engum vafa. Barry tók vítið, sendi markvörðinn í vitlaust horn og skoraði örugglega! Staðan því orðin 2-1. Game on!

Þreföld skipting hjá Everton á 76. mínútu þegar Aznou, Patterson, og King komu inn á fyrir Mykolenko, O’Brien, og King. Tarkowski kom svo inn á fyrir Branthwaite á 80. mínútu.

Stuttgart sköpuðu sér snoturt færi á 83. mínútu með hárri sendingu fyrir mark frá hægri til vinstri sem sóknarmaður þeirra skallaði í ofanverða slána og yfir. 

Maður átti von á því að einni mínútu yrði bætt við og fannst að Everton lítinn tíma til að jafna — en annað átti eftir að koma í ljós. Þeir fóru í sókn en misstu boltann, Stuttgart brunuðu í hraða sókn, sendu boltann inn í teig og sóknarmaður þeirra setti boltann í netið í fyrstu snertingu. 3-1 fyrir Stuttgart, sem var aðeins meira en þeir áttu skilið.

Everton fékk svo þrjú tækifæri á örfáum sekúndum í sömu sókninni. Fyrst hár bolti fyrir úr horni, sem Keane skallaði að marki, framhjá markverði en boltinn fór í lappirnar á Patterson og út. Boltinn barst til Ndiaye sem skaut af stuttu færi en markvörður varði vel. Frákastið barst aftur til Ndiaye, sem náði öðru skoti af stuttu færi, sem markvörður varði aftur! Boltinn fór mögulega yfir línuna en dómarinn ekki á því. Stuttgart menn stálheppnir þar!

Dómarinn bætti á endanum 10 mínútum við, sem er ótrúlegt fyrir vináttuleik á undirbúningstímabili en fleiri urðu færin ekki.

Tap í þessum síðasta leik undirbúningstímabilsins skiptir svo sem engu, því maður á að horfa frekar á frammistöðu leikmanna í leiknum og reyna að meta hvort þeir hafi sýnt nóg til að negla niður stöðu í aðalliðinu á komandi tímabili.

Comments are closed.