Mynd: Everton FC.
Annar leikur Everton á undirbúningstímabilinu var gegn Bolton á útivelli en hann endaði með naumum sigri Stoke City.
Uppstillingin: Travers, Mykolenko, Keane, Tarkowski (fyrirliði), Röhl, Hackney, Armstrong, George, Dewsbury-Hall, Dibling, Beto.
Varamenn: (úr aðal-liðinu) Pickford, King, Aznou, O’Brien, Iroegbunam, Alcaraz, McNeil, Barry. Einnig voru á bekknum 5 leikmenn U21 árs liðsins: Tamen (miðvörður), Foster (miðvörður), Campbell (miðvörður), Finney (hægri bakvörður), Graham (framherji).
Samkvæmt útsendingu var þetta 4-2-3-1 uppstilling með Mykolenko og Röhl í bakvarðarstöðunum, Armstrong og Hackney á miðsvæðinu, George á vinstri kanti, Dibling á hægri og Dewsbury-Hall í holunni fyrir aftan Beto.
Everton liðið var sprækt og leit yfirvegað út með bolta frá upphafi leiks og átti þrjár fínar sóknir á fyrstu mínútunum, þar af ein sem endaði með langskoti utan af velli frá George, en rétt framhjá samskeytunum. Stoke menn fengu þó hættulegri færi en Everton í fyrri hálfleik og sérstaklega hefði Everton mátt gera betur í að láta reyna á markvörð Stoke.
Hackney, sem var að spila sinn fyrsta leik með Everton, var líflegur en hann spilaði hlutverk djúps miðjumanns, sem var oft mættur milli miðvarða Everton að sækja boltann og dreifa spilinu en hafði líka greinilega leyfi til að stinga sér í vítateig andstæðinganna þegar Everton sótti, pínu svona box to box, eins og sagt er, en manni sýnist Hackney fitta vel inn í þetta stutta þríhyrningaspil, sem Everton beitti í leiknum og mun beita á tímabilinu, ef ég þekki Moyes rétt. Það á svo eftir að koma í ljós hvort Hackney reynist betri skotmaður en Gana var.
Stoke menn fengu gott færi á 11. mínútu þegar þeir náðu fínni stungusendingu aftur fyrir Tarkowski, en Travers kom vel út á móti, lokaði markinu, og varði í horn.
Þeir áttu svo fast skot utan teigs á 23. mínútu en Travers varði aftur vel, í þetta skiptið í horn. Á 43. mínútu kom svo besta færi fyrri hálfleiks, þegar hægri kantmaður Stoke fór illa með Mykolenko og komst inn í teig. Gaf stuttan bolta út í teig á samherja sem kom á sprettinum inn í teig og skaut að marki Everton, en Travers varði vel í slána og yfir. Everton komst í skyndisókn í kjölfarið þar sem George náði að hlaupa á varnarlínuna og koma boltanum á Beto, sem gat ekki launað honum greiðann með því að koma honum í færi upp við mark.
0-0 í hálfleik.
Fjölmargar breytingar hjá Stoke í hálfleik, sem skiptu nánast — ef ekki bara öllu — byrjunarliðinu sínu út af. Ein breyting hjá Everton: Iroegbunam inn á fyrir Hackney, sem var liḱlega ákveðið fyrir leik. Fínn leikur hjá Hackney í dag.
Stoke áttu fyrsta færi seinni hálfleiks, langskot utan af velli, en rétt yfir mark Everton. Everton fékk hins vegar fínt færi eftir góðan undirbúning frá Dibling, sem tók þríhyrning með Beto við D-ið á vítateig Stoke, sendi svo til hliðar á Dewsbury-Hall, sem náði skoti sem varnarmaður skriðtæklaði fyrir og boltinn því rétt yfir slána. Hefði viljað sjá hvar það skot hefði endað, ef það hefði ratað á mark, en allavega vel gert hjá Dibling, sem hafði átt erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik.
Á 60. mínútu skoruðu Stoke menn nokkuð óvænt, þegar þeir náðu skoti rétt utan teigs. Sóknarmaður þeirra smellhitti boltann sem fór í sveig rétt utan við Keane inni í vítateignum og svo inn alveg upp við stöngina. Erfitt fyrir Travers í markinu, sem hafði átt frábæran leik markinu í fyrri hálfleik. Fyrsta markið, sem Everton fær á sig á undirbúningstímabilinu, þar með orðið staðreynd.
Fjöldi breytinga hjá Everton í kjölfarið. King, Aznou, O’Brien, Alcaraz, McNeil, Barry inn á fyrir Travers, Mykolenko, Tarkowski, Dibling, George, og Beto.
Uppstillingin þar með orðin: King, Aznou, O’Brien, Keane, Röhl, Iroegbunam, Armstrong, Alcaraz, Dewsbury-Hall, McNeil, Barry.
Stoke menn náðu aftur góðu skoti á mark á 67. mínútu, lágt og alveg út við stöng, en King varði vel í horn. Þeir áttu svo annað flott skot á 72. mínútu, sem sleikti fjærstöng hægra megin, frá þeim séð. Í millitíðinni kom svo Graham inn á fyrir Dewsbury-Hall og á 87. mínútu kom Campbell inn á fyrir Armstrong.
Everton fékk frábært tækifæri ti að jafna leikinn á 91. mínútu þegar McNeil tók hornspyrnu og sendi háan bolta á fjærstöng, þar sem O’Brien stökk upp, fékk svo til frían skalla en setti boltann í þverslána og yfir. Óheppinn þar. Besta færi Everton í leiknum.
Stoke svöruðu með skyndisókn en King náði verja skotið vel og fleira markvert gerðist ekki. 1-0 sigur Stoke því staðreynd.
Ekki nægilega mikil ógnun í sóknarlínunni og, líkt og í fyrri hálfleik, létu þeir ekki reyna nægilega vel á markvörð Stoke.
Næsti æfingarleikur er gegn Hamburger Sportverein í Þýskalandi á laugardaginn, en mér skilst sem það verði ekki hægt að horfa á hann í beinni sökum útgáfuréttinda á útsendingunni, en líklega verður hægt að horfa á hann á sunnudag/mánudag í endursýningu (fyrir áskrifendur Forever Blue+).


Tyrjunarlið:
Travers, Rohl, Tarkowski (F), Keane, Mykolenko, Armstrong, Hackney, Dibling, Dewsbury-Hall, George, Beto.
Varamenn, King, G.Pickford, McNeil, Barry, O’Brien, Alcaraz, Aznou, Iroegbunam, Tamin, Finney (næstum því Finnur), Graham, Campbell, Foster.
Staðan í leiknum: Stoke City er yfir 1–0 gegn Everton. Markið kom á 58. mínútu leiksins.Breytingar hjá Everton í seinni hálfleik:Everton hefur gert sex breytingar á liði sínu til að dreifa álaginu og fríska upp á leikinn:Í hálfleik: Hayden Hackney fór af velli og Tim Iroegbunam kom inn á í hans stað á miðjuna.Á 60. mínútu (fimmföld skipting):Tom King kom inn á í markið fyrir Mark Travers.Jake O’Brien kom inn í vörnina fyrir Michael Keane.Carlos Alcaraz kom inn á miðjuna fyrir Merlin Röhl.Dwight McNeil kom inn á vænginn fyrir Tyrique George.Thierno Barry kom inn í sóknina fyrir Beto.
Ég sé að þetta er ekki alveg rétt… ég bað gerfigreind að sjá um þetta fyrir mig… var bara að prufa aðeins… en það virðist ekki virka… 😉
en síðari hálfelikur er að mínu mati verri en sá fyrri…
Braden Graham inná á 70.mín.
Besta við þennan lelik var að Tony Hibbert meistarinn sjálfur var sérfræðingurinn í „settinu“ það var/er gaman að hlusta á hann…
Úff!! Langt og leiðinlegt tímabil framundan sýnist mér.