Dundee – Everton 0-4 (vináttuleikur)

Mynd: Everton FC.

Undirbúningstímabilið er formlega hafið og fyrsti leikurinn er í gegn skoska úrvalsdeildarliðinu Dundee. Ekki eru allir leikmenn komnir aftur af t.d. heimsmeistaramótinu, eins og Pickford (sem á leik í kvöld með Englandi) en einnig eru Gana, Ndiaye og Patterson enn í sumarfríi. Að auki eru Garner, Branthwaite, Mykolenko frá, líklega vegna meiðsla, og nýi leikmaðurinn. Hayden Hackney, er ekki í hóp.

Það er oft þannig hvort eð er að leikmenn á jaðrinum fá tækifæri í fyrsta leiknum og oft jafnvel breytt um nánast allt liðið í hálfleik. Sjáum hvernig þetta fer. Hægt er að horfa á leikinn í heild sinni hér (fyrir Forever Blue+ áskrifendur og ársmiðahafa).

Uppstillingin: Travers, Aznou, Keane (fyrirliði), O’Brien, Röhl, Iroegbunam, Armstrong, Dewsbury-Hall, Dibling, George, Beto.

Varamenn: King, Tarkowski, McNeil, Alcaraz, Barry og restin úr unglingaliðinu Taman, Finney, Graham, Campbell, Olayiwola, Catesby, Foster.

Sýndist þetta vera 4-2-3-1 uppstilling, skv. upplýsingum sem útsendingin gaf, með Röhl í hægri bakverði, Armstrong og Iroegbunam á miðsvæðinu með George og Dibling á köntunum, Dewsbury-Hall í holunni og Beto fremstan.

Leikmenn virtust koma pínu ryðgaðir undan sumarfríum, eins og venja er, enginn meira en markvörður Dundee — þrátt fyrir að Dundee væru mun lengra komnir (6 leiki) í sínum undirbúningi en Everton. Því markvörður þeirra var næstum búinn að gefa Everton mark á 5. mínútu þegar hann fékk sendingu til baka, hitti ekki boltann sem rúllaði næstum því í markið (og markvörður þurfti að bjarga á línu). Rólegt annars um að litast fyrstu mínútur.

Fyrsta almennilega færið kom á 24. mínútu þegar Armstrong setti Beto inn fyrir með laglegri stungusendingu þannig að Beto komst í skotfæri inni í teig en varnarmaður Dundee skriðtæklaði fyrir skotið og kom í veg fyrir mark.

Dundee náðu skoti á mark á 29. mínútu, rétt utan teigs, en beint á Travers í marki Everton, sem varði auðveldlega. Þeir náðu svo fyrirgjöf á 34. mínútu sem skapaði hættu, en boltinn yfir slána. Útspark.

Á 36. mínútu rakti Beto boltann hratt í átt að vítateig og reyndi skot en auðveldlega varið. Hann fékk svo annað tækifæri aðeins mínútu síðar og þar var heppnin með honum, því boltinn breytti stefnu af varnarmannig og fór í sveig yfir markvörðinn. 0-1 fyrir Everton!

Og þannig var það í hálfleik!

Sjö breytingar á liði Dundee í hálfleik, og fjórar hjá Everton: Tom King inn á í markið fyrir Travers, Tarkowski fyrir O’Brien, sem og McNeil og Alcaraz inn á fyrir Dewsbury-Hall og Beto.

Þar með leit þetta svona út: King, Aznou, Keane, Tarkowski, Röhl, Iroegbunam, Armstrong, McNeil, Alcaraz, Dibling, George.

Dibling með fyrsta færi seinni hálfleiks, á 48. mínútu, þegar hann fékk boltann óvænt inni í teig en þrumaði yfir.

Á 60. mínútu komu nokkrar skiptingar hjá báðum liðum. Hjá Everton komu Eli Campbell, George Finney, Will Tamen, Harvey Foster, Malik Olayiwola, Braiden Graham og Thierno Barry inn á fyrir Aznou, Röhl, Keane, Iroegbunam, Armstrong, Dibling og George. Eiginlega má halda því fram að þetta hafi nánast verið Everton U21 sem hafi spilað síðasta hálftímann.

Hinn ungi, Braden Graham, fékk dauðafæri á 66. mínútu eftir fyrirgjöf frá hægri kanti, beint fyrir markið, framhjá markverði, og hann reyndi að setja boltann í autt markið, en náði ekki skoti. Barry komst svo í skotfæri aðeins mínútu síðar, en setti boltann nokkuð langt framhjá hægri stöng.

En annað mark Everton kom á 69. mínútu. Markvörður Dundee var með boltann við vítateigsjaðarinn og ekkert að gerast. Barry fikraði sig nær honum en tók svo sprettinn þegar markvörður ætlaði að sparka fram völlinn, setti fótinn fyrir boltann sem fór í sveig í átt að marki Dundee og inn. Everton þar með komið í tveggja marka forystu!

McNeil átti skot innan teigs á 72. mínútu en það reyndist auðvelt fyrir markvörð Dundee. Dundee svöruðu með skoti innan teigs á 75. mínútu sem King, í marki Everton, þurfti að kasta sér niður til að verja.

Þriðja mark Everton kom svo á 82. mínútu þegar markvörður Dundee var settur undir pressu svolítið vinstra megin við mark sitt (frá okkur séð) og hreinsaði út úr teig, beint á Harvey Foster sem setti boltann strax með fyrstu snertingu í autt markið! 0-3 fyrir Everton og fyrsta mark hans komið fyrir aðallið Everton (svo ég viti)!

En Everton bætti einu við í lokinn og aftur var það eftir mistök markvarðar — eiginlega alveg eins og mistökin hjá honum í markinu á undan. Hreinsun frá honum út úr teig fór beint á leikmann Everton, sem kom boltanum inn í teig til Alcaraz sem renndi honum á McNeil fyrir framan mark og hann skoraði auðveldlega. 0-4!

Dundee fengu eitt færi undir lok venjulegs leiktíma, þegar vinstri bakvörður/kantmaður þeirra komst upp kantinn og inn í teig með boltann en skriðtækling frá varnarmanni Everton bjargaði þessu í horn.

Gott að byrja undirbúningstímabilið með sigri og ekki verra að sigurinn var stór, en aðalatriðið er þó að menn fengu smá tækifæri til að skerpa leikformið og enginn meiddist (svo vitað sé).

Comments are closed.