|
Ég er búin að reikna þetta allt saman út fram og til baka og byggi á staðfestum og ábyggilegum heimildum, en það er niðurstaðan að Everton lendir í 4. sætinu í ár! Já, þetta kemur svolítið á óvart, en lítum á málin. Leikir Man. City munu fara þannig; Birmingham (H) jafntefli, Man.Utd (H) tap, Arsenal (Ú) tap, A.Villa (H) jafntefli, Tottenham (H) jafntefli, West Ham (Ú) sigur. Sem sagt 6 stig sem þeir fá plús 59 eða 65 í heildina. Leikir Tottenham fara þannig; Arsenal (H) tap, Chelsea (H) tap, Man.Utd (Ú) tap, Bolton (H) sigur, Man.City (Ú) jafntefli, Burnley (Ú) sigur. Sem sagt 7 stig + 58 eða 65 stig. Leikir Liverpool: Birmingham (Ú) jafntefli, Fulham (H) sigur, West Ham (H) sigur, Burnley (Ú) sigur, Chelsea (H) tap, Hull (Ú) jafntefli. Þeir fá 11 stig + 54 eða 65 stig. Leikir Aston Villa; Everton (H) tap,Portsmouth (Ú) sigur, Hull (Ú) jafntefli, Birmingham (H) jafntefli, Man.City (Ú) jafntefli, Blackburn (H) sigur. Þetta gera 9 stig + 54 eða 63 stig. Það þarf vart að taka það fram að Everton mun vinna alla síðustu 6 leiki sína og fá 18 stig + 49 eða 67 stig og fjórða sætið er tryggt! Ja, maður leyfir sér allavega að halda í vonina víst að hún er enn til staðar, ekki rétt?
|