Everton.is

 
 

Allt að gerast

Jæja nú er nýtt tímabil um það bil að hefjast. Það sem ég sá á everton síðunni á facebook var að brýnt er að kalla saman aðalfund og kjósa nýja stjórn sem rífur klúbbinn upp. Ég er sammála því, ég á að heita ritari en geri lítið. Nema það að setja hér inn fréttir en fæ lítið comment á móti. En á meðan ég hef eitthvað að segja þá held ég áfram að setja inn hitt og þetta, þó svo enginn skoði það.

 

Það helsta er að Donovan er áhugasamur um að snúa aftur á Goodison, enda væri það bar snilld að fá þennan snilling í föstum leikatriðum í okkar raðir. Nokkuð ljóst þykir að Everton þurfi að opna budduna mjög mikið til að ná í þennan, en maður veit aldrei. Það eina sem stendur í vegi fyrir að Donovan komi er að LA vill fá annsi góða summu fyrir kappann. Spurningin er þurfum við að selja Pineaar til að ná í Donovan og borgar það sig??

Þeir sem komnir eru fyrir næsta tímabil eru Jermaine Beckford, Joao Silva, Magaye Gueye og Jan Mucha. Beckford gerði að sjálfsögðu góða hluti með Leeds, en hefur hann það sem þarf í Úrvalsdeildina? Joao er tvítugur og á framtíðina fyrir sér, hann spilaði 30 leiki fyrir annarrar deildar liðið Aves í Portúgal og skoraði 14 mörk á síðasta tímabili. Verðum við ekki bara að treysta Moyes með þennan?

Magaye Gueye var keyptur frá Strasbourg hann er 20 ára gamall framherji. Spurning afhverju allir Frakkar eru á útsölu? En hann spilaði með yngri landsliðum Frakka við góðan orðstír. Hann hefur nú þegar skorað eitt mark fyrir Everton á undirbúningstímabilinu, sem er gott, ekki satt?

Þá er það Jan Mucha, en hann er hinn gríðar góði markvörður Slóvaka. Hann spilaði alla leiki Slóvaka á HM 2010 og stóð sig frábærlega. Spurning hversu mikla samkeppni hann nær að setja á Howard.

 

Jæja hvað segið þið????

 

Share
Comments (6)
  • Teddi
    Fínt að fá góðan varamarkmann, vonandi er hann kominn til að taka við af Howard þegar hann hættir.
    Ekki spurning að selja Pienaar til að kaupa Donovan, gæða horn- og aukaspyrnur gefa miklu meira en kerlingavælið í fléttugaurnum!
    Önnur kaup hingað til eru bara til að fylla bekkinn, efast um að þessi Beckford hafi hausinn til að plumma sig í efstu deild.

    Styð þig heilshugar í áframhaldandi skrifum, er ekkert að þræða erlendar fréttasíður svo það er fínt að fá helstu fréttir hérna.
    Kíki reglulega hingað.
    Það verður að halda síðunni uppi þótt hún sé hálf líflaus á löngum köflum.
  • Tóti
    Ætli að það sé ekki kominn tími á að sætta sig við að Yakubu er letibelgur,

    klárlega talent, en er trúlegas í raun og veru 40 ára og búinn á því...

    ég segi bara selja Yakubu, kaupa Donovan AKA Sunshine Superman.

    Þá er þetta komið fínt fyrir veturinn..
  • Elvar Örn
    Moyse hefur sagt að Everton hafi ekki efni á Donovan en verðmiðinn virðist vera um 11m punda.
    Mest er rætt um að Pienaar,Arteta eða Yakubu gætu farið en ef ég ætti að velja þá væri það Yakubu.
    Ef einhver þeirra fer þá verður það krafa Everton aðdáenda að Landon Donovan verði keyptur, og réttilega svo þar sem sumarkaupin eru eingöngu samtals 1 milljón punda so far og verður ekki meir nema komi til kaupa á Donovan.

    Nýju mennirnir hafa litið vel út og þá hefur Gueye komið mér amk mest á óvart, en Beckford hefur spilað vel það litla sem hann hefur spilað (góð mörk á móti Preston).

    Rodwell hefur einnig litið frábærlega út og Coleman frábærlega einnig, Jagielka verið klettur og Saha beittur. Púff og erfitt að segja þetta en Nevill hefur verið agalega yfirvegaður og spilað massað í þessum leikjum.

    Reyndar hef ég aldrei séð Everton spila svona vel á Pre-Season, líta mjög vel út.
  • Ari
    Við skulum ekki gleyma því að það er langt síðan að Arteta og Fellaini spiluðu í sama leiknum. Fellaini var álitinn einn allra besti miðjumaðurinn í deildinni EF ekki sá besti áður en hann meiddist. Sem betur fer fyrir okkur þá var arteta þá akkúrat að koma til baka og seinni hluti okkar tímabils var ekki slæmur. En það verður gamanað sjá þá tvo saman í góðu formi.

    Við verðum að landa Donavan og það væri frábrt ef við myndum kaupa hann. Yakubu er fyrsti kostur til að fjármagna kaupin á Donavan. En miðað við upphæðir sem nenfdar eru í sambandi við Pienaar (18mills)og Arteta (25mills) þá gæti ég alveg hugsað mér að selja Pienaar.

    Arteta hins vegar myndi ég ekki tíma að selja nema kannski til Barcelona (ef sú tröllasaga er rétt)á 25 millur. Hann væri þá kominn heim (ef það er satt að hann vilji heim)og myndi enda ferilinn þar sem hann byrjaði. Tímasetningin væri hins vegar slæm og allur sá uppgangur sem hefur verið á þessu ári gæti hrunið.

    Það á eitthvað eftir að geras...
  • Tóti
    sko Pieenar má ekki fara, vinnusemi hans er mjög mikilvæg!

    þessi maður var kanski soldið hæpaður upp í kringum HM en þetta er lykilmaður í okkar liði og mikil orkusprauta fyrir spilandan í liðinu.

    Yakubu hefur alltaf verið soldið öðruvísi en hinir leikmennirnir, hann hefur jú talent en er húðlatur og sker sig þannig úr liðinu.

    Yakubu út, Donovan inn :)
  • Ingólfur EFC
    Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um Pienaar. Flottur leikmaður, vinnusamur og skapandi en það eru klárlega prímadonnutaktar í honum. Finnst samt að við ættum að halda honum. Síðan tel ekki nauðsynlegt að kaupa Donovan í staðinn. Held að Moyes sé ekki að fara borga 11m fyrir 28 ára leikmann - því miður. Mér finnst við ættum að halda hópnum eins og hann er núna fram að áramótum og sjá svo til. Yak og Pienaar vita að þeir eru á síðasta séns og í versta falli losum við okkur við þá í janúar. Fáum þá ekki mikið fyrir Pienaar, en fyrst að Moyes er ekki búinn að selja hann, þá er það mjög ólíklegt að hann geri það svona rétt fyrir fyrsta leik - og hvað þá eftir hann (Lescott í fyrra).
    Er helvíti spenntur fyrir Hatem Ben Arfa ef Pienaar skyldi ákveða að fara - gríðarlega spennandi leikmaður. Hann er fífl, en held að liðsheldin hjá Everton ná að bæla það niður.
  • Ari
    Ingólfur, það er kannski ekki nauðsynlegt að kaupa Donovan sammála þar en mikið langar mig að fá hann til Everton....:)

    Eftir að hann kom til liðsins unnum við Manchester United, Chelsea, jafntefli við Arsenal og Machester City tvisvar.

    Þessi kafli sýndi það og sannaði að við getum vel verið í hópi þessara sterku liða.

    Ekkert nauðsynlegt að fá hann, 11 millur of mikið en flottur leikmaður sem alltaf ógnar.......
Only registered users can write comments!

!joomlacomment 4.0 Copyright (C) 2009 Compojoom.com . All rights reserved."