Everton.is

 
 

Eitt stykki 15 ára

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Þriðjudagur, 03. mars 2009 14:13

Femi Orenuga Everton hefur haft betur en Manchester United on náð til sín einu heitasta efninu í boltanum í dag. En það er hinn fimmtán ára gamli Femi Orenuga, en hann kemur frá Southend United. Femi var til reynslu hjá Man. Utd, árið 2008 en ákvað að fara til Everton. Hann mun koma þangað 1. júlí á námsstyrk. Hann hefur snúið höfðum hjá mörgum stjórum í Úrvalsdeildinni en ákvað sjálfur að ganga til liðs við Everton eftir að Moyes hefur verið að ná til sín fleiri ungum leikmönnum eins og Rodwell og Gosling.

Í öðrum fréttum þá hefur Steven Pinaar lýst því yfir að hann sé reiðubúinn að taka við hlutverki Arteta sem leikstjórnandi Everton. Nú er bara að vona að hann standi við stóru orðin.

Nú er spurning hvernig Moyes mun stilla upp liðinu gegn Blackburn á miðvikudaginn. Hibbert er að vona að hann verði klár. Spurning hvort við náum ekki smá umræðum um hvernig liðið á að vera.

Góðar stundir.

Share
 

Stutt slúður

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Sunnudagur, 22. febrúar 2009 14:12

Ég vil byrja á að biðjast afsökunnar á því að hafa ekki verið duglegri við að setja inn einhverjar fréttir upp á síðkastið, en þetta er svona með okkur Everton menn, við gerum allt best í skorpum. Nú eru sögusagnir farnar að myndast um það hverjir fara til hvaða liða í sumar. Hávær orðrómur hefur verið að Moyes sé að undirbúa 8,8 milljóna boð í Cissé, Moyes er mikill aðdáandi hanCissés. Cissé er á láni hjá Sunderland en hann er samningsbundinn Marseilles til 2012.takayuki morimoto

Það sem að Moyes vill fyrir sumarið er að halda öllum sínum skærustu stjörnum, þ.e. að hann þurfi ekki að selja neinn. Þó er talað um það meira og meira að Lescott verði seldur. Reyndar hafa vangaveltur verið í þá áttina að Moyes selji marga af sínum mönnum sem ekki mikið hefur komið út úr, AVM hlítur þá að vera fyrstu út. Moyes er búinn að fara fram á 10-15 milljónir punda til leikmannakaupa. Það eru ekki miklir peningar, þannig að hann hlýtur að vera búinn að fá loforð um að halda sínum bestu mönnum.

Þá er talið að Moyes sé á eftir Takayuki Morimoto, en hann er framherji hjá Catania, sem spilar í ítölsku Seríu A.

Þá hafa leikmenn Manchester City talað mikið um það að þeir séu mjög hissa á því að Jo hafi fengið að fara frá City til Everton. Hann var mikils metinn hjá City af öðrum leikmönnum og flestir voru á því að hann hafi ekki fengið næganleg tækifæri. Við vonum að hann haldi áfram á sömu braut og í fyrsta leiknum. Moyes vill þó að aðdáendur Everton setji ekki of miklar kröfur á Jo. Hann vonar að Jo fái tækifæri til að þróast í rólegheitum og þá jafnvel fær Moyes heimild til að vippa fram tékkheftinu.

Síðan er leikurinn á eftir við Newcastle, Mikilvægt er að ná öllum þremur stigunum úr þessum leik.

 Góðar stundir.

Share

Everton unnu Liverpool 1-0

Skrifað af: Georg Haraldsson
Fimmtudagur, 05. febrúar 2009 19:05

 http://img.photobucket.com/albums/v200/Willmc/28nnuf.gif

Í gær unnu Everton frábærann sigur á Liverpool 1-0 þar sem hinn 19 ára gamli Dan Gosling skoraði í seinni hálfleik framlengingar. Þar sem staðan var 0-0 eftir venjulegan leiktíma þurfti framlengingu og var það enginn annar en Andy Van Der  Meyde sem átti fyrirgjöfina og var þetta alveg frábært mark hjá Gosling þar sem hann tók boltann niðu, var með 4 Liverpoolmenn í kringum sig en náði samt skoti á mark og það stöngin inn! Frábært hjá drengnum sem á bara eftir að vaxa. Einnig átti Jack Rodwell flottann leik eftir að hafa komið inná í seinni hálfleik ásamt Gosling og sá gutti er bara 17 ára gamall svo að framtíðin er bara björt hjá þeim tveim.  

Ég fann þessa skemmtilegu mynd af Jagielka sem mér fannst mjög táknræn þar sem Jagilka var bókstaflega með Torres gjörsamlega í vasanum allann leikinn og leit Torres út eins hann væri nýr í sportinu. Ef Capello velur ekki Jagilka í næsta enska landsliðhóp þá er eithvað meira en lítið að manninum. Jagielka hefur verið hreint frábær á leiktíðinni og hefur bara vaxið, Lescott er búinn að finna sitt besta form aftur og eru þeir tveir eitt sterkasta miðvarðarpar á englandi. Einnig hafa bakverðirnir staðið sig frábærlega þar sem Baines hefur verið gríðarlega duglegur að fara upp kanntinn og krossa boltanum mjög vel inní teyginn, einnig hefur Hibbert komið manni einna mest á óvart en eftir að hann kom úr meiðslunum hefur hann verið frábær vernarlega og er hann farinn að geta krossað líka og held ég að Everton sé eina liðið í deildinni sem getur státað af því að vera með öftustu línuna bara með enska leikmenn. 

Aterta var mjög rólegur framanaf í leiknum en eftir að Fellaini var tekinn útaf og Rodwell kom inná þá færði Arteta sig aðeins framar á völlinn og Rodwell kom fyrir aftan hann og spilaði Arteta eins og kóngur á miðjunni og var hreint frábær í að dreifa spilinu fyrir liði og var að koma með fullt af frábærum sendingum.

 Núna erum við búnir með mjög erfiðan kafla þar sem við erum búnir að keppa 2 við Liverpool á Anfield, Arsenal heima og allir þrír jafntefli og var grátlegt að ná bara jafntefli gegn Arsenal. Einn tapleikur gegn Man Utd á Old Trafford en svo þessi frábæri sigurleikur. Næstu leikir verða allt leikir sem ég tel að liðið eigi að vinna og mun ráðast úr næstu leikjum hvort liðið hafi séns á að ýta á 4-5 sætið í deildinni. 

Áfram Everton.

Share
 

Jo (staðfest?)

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Mánudagur, 02. febrúar 2009 13:00

JoNýjustu fregnir herma að Jo sé búinn að fara í læknisskoðun hjá Everton og sé á leiðinni á fyrstu æfinguna með liðinu á Finch Farm núna á eftir. Það kemur endanleg staðfesting á eftir.

Share

Lokadagurinn

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Mánudagur, 02. febrúar 2009 08:30

Sælir félagar nú er lokadagur janúargluggans. Nokkrar kjaftasögur eru í pípunum, en það er að Jo komi frá Man City og að Darren Bent sé að bíða eftir tilboði frá Everton. Sjáum hvað gerist. Um leið og eitthvað er staðfest þá reyni ég að setja það hérna inn.

Góðar stundir

Share
 

Glugginn enn opinn!!!

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Laugardagur, 31. janúar 2009 10:28

NAsamoah Gyanýjustu fregnir herma að Moyes sé að fá tvo leikmenn frá Rennes í Frakklandi. Fyrstan ber að nefna Asamoah Gyan en hann er frá Ghana. Hann hefur ekki skorað nema eitt mark fyrir Rennes síðan hann kom þangað. En þegar hann leikur með landsliði Ghana þá má segja að hann skori í öðrum hverjum leik. Wesley YamnaineHann hefur skorað 13 mörk í 27 leikjum fyrir Ghana. Hann sýndi mjög góða takta á HM 2006 í Þýskalandi. Hann er meðal annars frægur fyrir að eiga met í að skora fljótast í leik á HM. En hann skoraði eftir 68 sekúndur í leik á móti Tékklandi á HM 2006.

Það er einnig talið að Moyes fái frá Rennes 16 ára gríðarlega efnilegan strák. En hann heitir Wesley Yamnaine. Þetta er varnarmaður og talið vera einn allra efnilegasti leikmaður Frakka.

Það er náttúrulega alltaf galli á gjöf Njarðar, en talið er að Moyes fái þessa tvo og þurfi að lána Lucas Jutkiewicz til enda tímabilsins. Ekki það að hann hafi komið mikið við sögu.

Þá er talað mikið um það að Moyes hafi lagt fram"lúmskt" boð í Darren Bent, fyrirsagnir í enskum miðlum eru á þessa leið: "David Moyes makes cheeky loan move for Tottenham's Darren Bent." Nokkuð vel þekkt er að Bent er ekki að finna sig hjá Tottenham og vill í burtu. Samt sem áður er 16 milljóna verðmiði á honum og nokkuð ljóst að Moyes hefur ekki peninga til þess, ekki einu sinni í lok tímabils. Þannig að þetta eru líklega eingöngu vangaveltur. Nú eru bara örfáir dagar eftir og gaman að fylgjast með. Endilega ef þið sjáið eitthvað slúður sem ég sé ekki að skella því inn.

Góðar stundir.

Share

Smá fréttir

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Föstudagur, 30. janúar 2009 07:07

Seamus ColemanJæja góðan daginn og afsakið hversu langt er síðan ég skrifaði síðast en búinn að vera í fríi. Jæja það fór nú aldrei svo en að Moyes næði einum til sín í Janúar glugganum. Búið er að staðfesta að Everton hefur keypt Seamus Coleman frá Sligo Rovers á Írlandi. Ég verð að viðurkenna að ég veit ekkert um þennan dreng annað en að hann á að heita mikið efni, hann er 20 ára og hefur spilað 4 leiki fyrir undir 21árs landslið Íra og einn leik fyrir undir 23ára landsliðið. Everton greiddi 150.000 pund fyrir Seamus

Anthony ModesteÞá er rætt um að Moyes sé að reyna að fá til sín Anthony Modeste frá Nice í Frakklandi. Anthony Modeste eða Tony er 20 ára og algjörlega óþekkt stærð. Hann hefur leikið með Nice síðan 2007. Hann hefur spilað 21 leik og skorað 1 mark, er það gott fyrir sóknarmann?

Þá hefur Guðjón Þórðarson fengið John Ruddy að láni í einn mánuð.

Nú er bara að fylgjast vel með þessa daga sem eftir eru að janúar glugganum. Moyes hefur verið frægur fyrir að nýta þá vel, en hann hefur reyndar gefið það út að hann sé ekki bjartsýnn að ná til sín fleiri mönnum.

Síðan eru ekki allir glaðir að fá enn einn leik við litla liðið hinum megin við ánna? Þetta er drauma tímabil, fjórir leikir við þá.

Góðar stundir.

Share
 

Síða 10 af 27

« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Nýtt af spjallinu

Borði

Spurningin