Everton.is

 
 

Everton vs. Arsenal á Kebabhúsinu

Skrifað af: Administrator
Laugardagur, 15. ágúst 2009 10:12

Everton vs. ArsenalNú er dagurinn runninn upp, fyrsti leikur tímabilsins og ekki að verri endanum. Everton hefur oft gengið brösulega á móti þeim en sigur í fyrsta leik mundi klárlega gefa tóninn þar sem Arsenal endaði í 4 sæti og Everton 5. Arsenal eru í töluverðum vandræðum með að stilla upp liði þar sem Kolo Toure og Adebayor eru báðir farnir til City og svo eru meiðsli að hrjá þá og telur sjúkralistin marga sterka menn.  (Diaby , Theo Walcott Johan Djourou,Lukasz Fabianski ,Tomas Rosicky Samir Nasri allir meiddir)

Evertonmenn ætla hittast í Kebabhúsinu á Grensássvegi og byrja leikurinn kl 16:15

Share
 

Lescott bað formlega um sölu

Skrifað af: Georg Haraldsson
Þriðjudagur, 11. ágúst 2009 19:07

Lescott Request Rejected

 Joleon Lescott bað formlega um að verða seldur og hefur Everton neitað honum því. Moyes hefur sagt það og endurtók það að hann ætlaði ekki að selja neinn leikmann. Þar sem leikmaðurinn er bundinn undir samning þá ber honum skylda að vera hjá félaginu nema að félagið vilji selja hann.

Share

Lesa nánar: Lescott bað formlega um sölu

Philippe Senderos ?

Skrifað af: Administrator
Sunnudagur, 02. ágúst 2009 10:31

Senderos

Hinn símásandi Senderos er nú bendlaður við Everton þessa daganna, og sumir (slúður)fréttamiðlar ganga svo langt að segja að hann sé nú þegar genginn við lið Everton.

Svisslendingurinn var á láni hjá AC milan síðasta tímabil þar sem hann spiaði 15 leiki og náði ekki heilla ítalana nógu mikið til þess að tryggja sér samning.

Leikmaðurinn átti stutt tímabil hjá tímabil hjá Arsenal þar sem hann sýndi hvað í honum bjó, en röð misjafna leikja varð til þess að hann missti stöðu sína í byrjunarliði Arsenal. Það er greinilegt að hann er ekki nægilega góður fyrir Arsenal né AC Milan en er hann nógu góður fyrir Everton ?

Share
 

Pienaar neitar samning

Skrifað af: Administrator
Mánudagur, 27. júlí 2009 13:24

PienaarSteven Pienaar hefur neitað nýju samningstilboði frá Everton. Pienaar (Penut) á 2 ár eftir af samningi sínum en hefur ítrekað það í fjölmiðlum að hann vilji semja upp á nýtt til lengri tíma.

Slúðurblöðin hafa verið fyllt af þeim sögum að hann sé á leið burtu frá félaginu, en sjálfur sagði hann í viðtali að þetta væri eðlilegt menn tæku ekki alltaf fyrsta tilboði.Sjáflur er hann vongóður að smaningur náist bráðlega.

Pienaar er Suður-Afríkumaður sem sló fyrst í gegn hjá Ajax en var síðan keyptur af Dortmund til að fylla í skarð Tomas Rosicky sem fór til Arsenal. Pienaar náði aldrei að fylla upp í það skarð og hröklaðist til Everton á láni og samdi síðan sumarið eftir við Everton og hefur blómstrað síðan.

Seinni hluti síðasta tímabils var mjög góður fyrir kappan í fjarveru Arteta og vakti síðan mikla atygli í álfukeppninni í sumar.

Share

Alan Hutton á leið í Everton?

Skrifað af: Administrator
Sunnudagur, 26. júlí 2009 08:12

HuttonSlúðurdálkarnir eru að venju stútfullir á þessum sunnudegi sem öðrum, og fregnir herma að Alan Hutton sé á leið til Everton frá Tottenham.

Hutton náði frábærum árangri í skoska boltanum sem og champions league með Glasgow Rangers og þótti mikið efni en hefur engan veginn ná ðsér á strik í ensku deildinni.

Tottenham hefur verið iðið við kolan að kaupa unga og efnilega bakverði sem lítið hefur orðið úr samanber Gunter, Bale ( og vonandi Kyle Noughton og Walker) og vonandi nær Everton að nýta sér það og ná Hutton á viðráðanlegu verði.

Share
 

Breytingar a sidunni

Skrifað af: Þórarinn Jóhannsson
Föstudagur, 10. júlí 2009 12:55

Nuna standa yfir breytingar a sidunni, tannig ad tetta er EKKI eins og tetta mun verda :)

Annars vari gaman ad fa tillogur um breytingar, hvad a ad fara og hvad a ad koma.

Tad er allt mögulegt og um ad gera ad svipast um a ödrum sidum og skoda sniduga hluti tar og lata svo i ser heyra i comment dalknum.

koma svo Everton.

 

PS.

a blukipper stendur undir Micah Richards "Signed for Everton" ...hvad er tad ??

 

Kv. fra Stokkholmi

Share

Everton fá tvo leikmenn

Skrifað af: Georg Haraldsson
Miðvikudagur, 08. júlí 2009 10:38

Round Keen For Jo Deal

Everton hefur gert 3 ára samning við Shkodran Mustafi 17 ára gamlann miðvörð sem kemur frá Hamburg. Mustafi sem kemur frítt þykir mikið efni og hefur verið að spila með yngri landsliðum Þýskalands.

Share

Lesa nánar: Everton fá tvo leikmenn

 

Síða 8 af 27

« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Nýtt af spjallinu

Borði

Spurningin