Everton.is

 
 

Hörður Björgvin Magnússon á reynslu

Skrifað af: Administrator
Mánudagur, 31. ágúst 2009 19:26

 tekið af fotbolti.net Ungur Framari að nafn Hörður Björgvin Magnússon er nú staddur í Liverpool og verður á reynslu hjá sínu uppáhaldsliði Everton. Hann er 16 ára að aldri og hefur verið að banka á dyrnar í meistaraflokk hjá Fram upp á síðkastið.

Hörður, sem er miðjumaður þykir með efnilegustu leikmönnum sem hafa sprottið upp úr unglingastarfi Framara á síðari árum, en hann er meðal annars fyrirliði U-17 ára landsliðsins.

Gaman væri nú að fá annan íslending í liðið til að fá aðeins meiri tengingu við liðið!   

Share
 

Evrópukeppnin

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Föstudagur, 28. ágúst 2009 14:21

Jæja þá er búið að draga í UEFA Europa League. Við lentum í I riðli ásamt Benfica frá Portúgal, AEK frá Grikklandi og Bate frá Hvíta Rússlandi. Þetta er kannski ekki auðveldasti riðillinn en ætti að vera mögulegt að komast áfram. Fyrsti leikurinn er gegn AEK 17. september n.k. á heimavelli okkar. Þetta verður örugglega spennandi fyrirkomulag að vera í riðlakeppni í Evrópukeppni. Kannski verða okkar menn það hungraðir að þeir ná að tryggja í Meistaradeildina, hver veit? Benfica verður klárlega erfiðasti bitinn, en efstu tvö liðin komast upp úr riðlakeppninni. Ekkert frekar er að frétta af leikmannamarkaðinum síðan að Distin skrifaði undir. Nú eru örfáir dagar eftir þar til markaðurinn lokast og gaman verður að sjá hvað Moyes er með upp í erminni. Góðar stundir

 

Share

Sylvain Distin til Everton (Staðfest)!

Skrifað af: Georg Haraldsson
Föstudagur, 28. ágúst 2009 14:04

Everton Seal Distin Deal

Everton hefur fest kaup á hinum 31. árs gamla miðverði Sylvain Distin frá Porstmouth fyrir óuppgefið verð. Distin sem getur bæði spilað í miðverði og í vinstri bak gerði þriggja ára samning við Everton.

Moyes talar um að honum hafi vantað einn miðvörð áður en að Lescott fór en segir Distin vera beinn staðgengill fyrir Lescott enda báðir örfættir. Þó segir Moyes réttilega að Distin sé eldri en Lescott en með meiri reynslu.

Perónulega er ég mjög feginn að fá loksins einhvern miðvörð til okkar. Distin er mjög góður leikmaður þó svo að maður hefði kannski viljað aðeins yngri leikmann, en hann á alveg örugglega góð 3 ár eftir í sér.

Einnig er búið að draga í riðlana fyrir Evrópu-deildina og eru everton í riðli með Benfica, AEK Aþena og BATE Borisov.

Share
 

I´m back

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Fimmtudagur, 27. ágúst 2009 23:32

Sælir félagar, ég er búinn að vera undir radarnum allt of lengi. Ég sá að Elvar var að reyna að fá Tóta til að láta hann hafa aðgang til að setja inn frétti og hvet ég Tóta til þess, en í milli tíðinni reyni ég að láta ykkur vita af því helsta.

DistinaNú er nokkuð ljóst að Sylvain Distin er á leiðinni til okkar. Hann er eins og flestir vita 31. árs varnarmaður, uppfullur af reynslu. Moyes hefur nokkuð góða reynslu af að ná í leikmenn sem eru komnir af léttasta skeiðinu, held að við verðum að treysta stjóranum í þessu. Það lítur út fyrir að Distin muni leika með Everton á sunnudaginn gegn Wigan.

Share

Lesa nánar: I´m back

Diniyar Bilyaletdinov búinn að standast læknisskoðun hjá Everton?

Skrifað af: Georg Haraldsson
Mánudagur, 24. ágúst 2009 23:34

Diniyar Bilyaletdinov of Lokomotiv Moscow

Samkvæmt The Daily Mail og Daily Post þá er Diniyar Bilyaletdinov búinn að standast læknisskoðun hjá Everton. Einnig segir að hann muni gera 5 ára samning við Everton og eigi bara eftir að fá atvinnuleyfi, sem menn telja að eigi ekki að vera neitt mál þar sem hann hefur verið fastamaður í Rússneska landsliðinu.

Share

Lesa nánar: Diniyar Bilyaletdinov búinn að standast læknisskoðun hjá Everton?

 

Everton er búið að samþykkja söluverð á Lescott

Skrifað af: Georg Haraldsson
Sunnudagur, 23. ágúst 2009 21:37

Everton og Man City hafa komist að samkomulagi um Lescott. Kaupverðið er óuppgefið en netmiðlar telja það vera 24m pund. Það eina sem er eftir er að klára læknisskoðun og skrifa undir samning. Svo að Lescott er farinn.

Græðgin getur farið með margan manninn. Eins og staðan var orðin þá tel ég þetta hafa verið það rétta í stöðunni að selja leikmanninn. Hausinn á Lescott var allt annarstaðar og allt þetta umstang í kringum þetta Lescott drama er búið að skemma byrjun leiktíðarinn fyrir Everton og allan þann undirbúning sem fór fram fyrir tímabilið.

Share

Lesa nánar: Everton er búið að samþykkja söluverð á Lescott

Saha 1 - Arsenal 6

Skrifað af: Þórarinn Jóhannsson
Sunnudagur, 16. ágúst 2009 21:03

ArsenalEftir langt sumar af svekkjandi fréttum af leikmannamarkaðinum kom loks að fyrsta leiknum. Það er greinilegt að liðið var ennþá í sumarfríi því 1-6 á heimavelli eru lélegustu úrslti í 51 ár. En það eru 37 leikir eftir á tímabilinu og engin tími né ástæða fyrir einhverju væli.

Þetta verður klárlega ekki verra en þetta í næsta leik ï deildinni, en þá mætum við nýliðum Burnley á útivelli og sigur ekkert annað en ásættanlegt eftir útreiðina á laugardaginn.

 

 

Share
 

Síða 7 af 27

« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Nýtt af spjallinu

Borði

Spurningin