Hvað er að gerast, hverju er um að kenna?
Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Mánudagur, 19. október 2009 16:50
Góðan daginn, þetta tímabil fer ekki alveg nógu vel af stað. Moyes viðurkennir í fjölmiðlum að ein af ástæðunum sé að margir af reyndustu leikmönnum liðsins eiga við meiðsl að stríða. Því miður virðist þetta vera sagan endalausa hjá okkar mönnum. Meiðslalistinn er langur og því miður virðast meiðslin vera þrálát hjá þessum mönnum. Þeir sem eru á meiðslalistanum eru meðal annars Arteta, Jagielka, Yobo, Pienaar og að sjálfsögðu Neville, fleiri eru þarna og er þetta ekki nógu gott.
Þá er nokkuð mikið talað um norskan varnarmann sem að Moyes á að vera mjög hrifinn af og var á óskalista hans í haust. Ég verð að viðurkenna að ég reyndi að finna eitthvað um þennan leikmann en takmarkað fannst. Hann heitir Knut Olav Rindarøy, er 23 ára gamall og spilar fyrir Molde í Noregi. Hann á að baki 3 U21 árs landsleiki og 1 með aðalliði Noregs.
Þá er vonandi að loforð Diniyar Bilyaletdinov verði að veruleika en hann segist vilja skora fleiri mörk fyrir Everton. Okkur veitir ekki af því sérstaklega þar sem Saha virðist dottinn í óstuð.
Meira síðar
Fellaini ekki með á móti Wolves ?
Skrifað af: Þórarinn Jóhannsson
Fimmtudagur, 15. október 2009 09:17
Nú lítur allt út fyrir að "the big Fella" verði ekki með á móti Wolves í næsta leik. Málið er að Dick Advocat nýráðinn þjálfari Belgíu vill banna honum það. Til er regla að að hjá Fifa að boði leikmaður afföll í landsleik getur viðkomandi land bannað hann frá keppni í 5 daga. Til eru dæmi um að leikmenn sem hafa verið óumdeilanlega meiddir fái samt þetta 5 daga bann.
Þess má geta að Fellaini þarf að fara í tannaðgerð sem hefur valdið honum miklum sársauka síðustu mánuði.