Everton.is

 
 

Ekki nógu gott- en er framtíðin björt?

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Fimmtudagur, 26. nóvember 2009 10:21

Ekki fór vel fyrir okkar mönnum í gær, 3-2 tap fyrir Hull. Hull komst í 3-0 og náðu Everton menn að minnka muninn með sjálfsmarki og vítaspyrnu, en það var ekki nóg. Staða liðsins er orðin annsi slæm í deildinni og lítur út fyrir að mögulega þurfum við að berjast við falldrauginn. Björtu hliðarnar eru þær að deildin er mjög jöfn og það þarf ekki marga sigra til að komast í efri hluta deildarinnar. Vonum það besta.

Moyes hefur gefið út að hann muni skella sér á markaðinn í janúar, hann segist vilja ná inn einum til tveimur góðum leikmönnum. Spurning hvaða menn það eru.

Heyrst hefur að Moyes hafi áhuga á Steven Taylor hjá Newcastle, en hann fór til að horfa á leik með Newcastle um daginn. Þá er Alan Hutton hjá Tottenham í sigtinu. Einnig er Neven Subotić, ofarlega á lista Moyes, en hann spilar með Borussia Dortmund, hann hefur þó sjálfur sagt að ólíklegt sé að hann fari frá þýskalandi í bráð. Einnig þá hefur heyrst að Man City sé á eftir honum og líklegt er að þeir geti boðið mun hærra í hann en Everton.

Eitthvað fór sá orðrómur af stað um daginn að Moyes væri að spá í að hætta hjá Everton, en hann hefur blásið á þær sögusagnir. Í öðrum fréttum þá hafa yfirvöld bannað byggingu nýs vallar Everton í Kirby. Hvað finnst aðdáendum um þetta? Stjórn Everton er miður sín yfir þessum fréttum, en samkvæmt aðdáenda síðum virðast þeir aðdáendur vera frekar sáttir.

David Moyes hefur gefið það út að leikmenn hans verði að taka ábyrgð á leik sínum, en hann sjálfur muni taka ábyrgð á því að velja menn í liðið. Þetta segir hann eftir mjög slakt gengi að undanförnu. Moyes er svektur og sár yfir gengi liðsins og segir að menn þurfi að fara að stíga upp og taka ábyrgð inni á vellinum.

Næst er heimaleikur gegn Liverpool, nú þarf að sýna og sanna að við erum stóra liðið í Liverpool. Við þurfum nauðsynlega á sigri að halda og vonandi gegnur það eftir á sunnudaginn.

Góðar stundir.

Share
 

Pub-Quiz á Vegiterian (Akureyri)

Skrifað af: Elvar Örn Birgisson
Þriðjudagur, 24. nóvember 2009 16:25

FAIR PLAY Pub-quiz á veitingastaðnum Vegiterian (Akureyri), í húsi Hótel Norðurlands.

Laugardaginn 28. nóvember verður fótbolta-pub-quiz (spurningaleikur) á Akureyri.

Leikurinn hefur átt miklum vinsældum að fagna í höfuðborginni og þar sem fyrir liggur leikur Everton og Liverpool þann 29. nóvember er mjög gaman að hefja göngu spurningaleiksins hér á Akureyri kvöldið fyrir þennan stórleik.

Hugmyndin er sú að í hverju liði verði 3 einstaklingar (vörn, miðja og sókn, hehe) og að ná amk. liðum frá Liverpool-klúbbnum og frá Everton-klúbbnum. Lagðar verða fyrir ca. 30 spurningar og reynt að gæta sanngirni í spurningavali t.d. að 5 verði um hvort lið og síðan almennar spurningar um fótbolta svo sem CL, EM og HM.

Keppnin byrjar kl 21:00 laugardaginn 28. nóvember. Spyrill verður Birkir Ólafsson en hann er þaulvanur að halda svona spurningakeppnir. Þessi keppni/leikur er fyrir alla fótboltaáhugamenn og því ekki bundin við þessa tvo stórklúbba.

Það verður enginn aðgangseyrir og stór er á 600 kr. og 5 stk. af 33cl í fötu er á 2500. 

Vinsamlegast látið Everton aðdáendur hér norðan heiða vita og commentið hér að neðan. Það væri nú ekki til afspurnar að ná ekki í amk 1 lið. 

Með kveðju og von um góða þáttöku.

Elvar Everton og Stebbi Liverpool.

Share

Framundan

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Þriðjudagur, 24. nóvember 2009 09:53

Mikið er rætt um það í enskum fjölmiðlum þessa dagana að Moyes ætli sér að ná í Alan Hutton, en hann kom 2008 til Spurs frá Rangers. Hann hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Lundúnaliðinu. Talið er að Tottenham hafi þurft að reiða fram 9 milljónir punda fyrir Hutton, spurning hvort að Moyes geti náð einhverju meiru út úr honum, en líklegast bara ef hann fær hann fyrir mun minni pening.

Moyes mun einnig vera búinn að setja boð í Milan Jovanovic, Serbann knáa frá Standard Liege. Birmingham bauð fjórar milljónir í Milan en því tilboði var hafnað á dögunum. Talið er þó að Man Utd, Spurs og Villa séu á eftir honum. Talið er að Moyes bjóði 5 milljónir í Milan.

Góðar fréttir úr herbúðum Everton, en talið er að Pienaar verði leikfær fyrir leikinn gegn Liverpool þann 29. nóvember n.k.

Næsti leikur Everton er gegn Hull miðvikudaginn 25. nóvember (á morgun). Fellaini verður ekki með, en hann tekur út leikbann (kemur á óvart) Spurning hvort þetta geti ekki verið tækifæri til að spila Jo og Saha frammi. Hvert er ykkar álit, hvernig á liðinu að vera uppstillt?

Góðar stundir.

Share
 

Nýjung á síðunni

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Fimmtudagur, 12. nóvember 2009 14:55

Vil bara benda ykkur á að við erum búnir að setja inn smá nýjung á síðuna, en það eru leikir og úrslit Everton á tímabilinu. Þið sjáið flipa efst á síðunni sem heitir Leikir og úrslit 09/10. Ef þið síðan smellið á úrslit leikja þá birtist umfjöllun um hvern leik af síðunni evertonfc.com.

Draumur minn er að sjálfsögðu að setja umfjöllun okkar um hvern leik bak við hver úrslit en því miður þá tekur það of mikinn tíma, en verður kannski veruleiki í framtíðinni. Endilega enn og aftur komið með hugmyndir að nýjungum á síðuna. Þetta er nú einu sinni síðan okkar og við viljum hafa hana sem glæsilegasta.

Góðar stundir.

Share

Gosling í U-21

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Miðvikudagur, 11. nóvember 2009 10:34

Gosling í U-21

Dan Gosling hefur fangað auga Stuart Pierce, U-21 árs landsliðsþjálfara Englands. En Gosling fær tækifæri með U-21 árs liðinu á laugardaginn gegn Portúgal. Vonandi byrjar hann inná. Pierce segir að styrkur Gosling liggi í því að geta spilað í mörgum stöðum á vellinum.

Fær Saha nýjan samning?Everton hefur mikinn áhuga á því að tryggja nýjan samning við Lois Saha, hann skrifaði undir tveggja ára samning í águst 2008 og getur því hafið viðræður við önnur lið á nýju ári. Moyes vill nýta sér klausu í samningi Saha sem segir að ef að áhugi er fyrri hendi hjá Everton að framlengja samninginn þá geti þeir það. Saha hefur lýst því yfir að hann hafi áhuga á að framlengja samning sinn við Everton. Hann viðurkennir þó að hann sé kannski ekki alveg í nógu góðu formi til að halda út heilan leik, en vill bæta sig í því. Hann er núna í Frakklandi undir læknishöndum til að reyna að vinna bót meina sinna.

Þá aðeins að meiðslum, Pienaar, Neville og Osman hafa allir náð mjög góðum árangri í að vinna bug á sínum meiðslum og vonir standa til að þeir verði til í slaginn fljótlega, þó eru menn mjög áhyggjufullir yfir fréttum síðustu daga um þá Arteta, Jagielka og Anichebe, en langt er í að þeir verði klárir. Moyes lýsir þessu eins og þrem skrefum fram á við og þremur afturábak. Moyes lét hafa eftir sér að hann bíði endurkomu Pienaar til að taka stjórn á spilinu.

Þá hefur komið í ljós að Bolton hafi mikinn áhuga á að tryggja sér Vaughan, þeir eru reiðubúnir að greiða 3 milljónir punda fyrir leikmanninn.Billy finnst Neville fyndinn

Diniyar Bilyaletdinov virðist ná að aðlagast vel Everton hópnum, hann segir að Phil Neville og Tim Cahill hafi hjálpað sér mikið í því að aðlagast. Hann segist reyndar vera skotspónn gríns hjá Phil Neville, en Neville lét hann víst mæta í mat með liðsfélögum sínum í sínu fínasta pússi meðan aðrir mættu í gallabuxum og bol. Þá er Neville búinn að skipa honum að æfa upp lag til að syngja í jólaboði leikmanna Everton. Hann er einnig mjög þakklátur Neville fyrir að hafa útvegað sér miða á leik CSKA Mosvu og Man Utd. í Meistaradeildinni um daginn. Gott mál ef Billy nær að falla vel inn í hópinn, vonandi að hann fari þá að sýna stórleiki.

 

Síðan er spurning hvort að þið, aðdáendur Everton viljið sjá eitthvað nýtt hér á síðunni? Endilega látið þá vita. Góðar stundir.

Share
 

Vangaveltur

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Miðvikudagur, 04. nóvember 2009 11:04

 

Ekki góðar fréttir, en komið hefur í ljós að Arteta hefur fengið sýkingu í hné, þetta þýðir að það lengist í að hann verði reiðubúinn til að spila á ný.

Saha er tæpur fyrir leikinn á fimmtudaginn, en meiðsli hafa verið að hrjá hann upp á síðkastið, hann er meiddur á kálfa.

Þá verða raddirnar háværari þess efnis að Moyes ætli sér að ná í Kim Kallstrom, talað er um að Moyes þurfi að reiða fram 4 milljónir fyrir hann. Hann þarf þó væntanlega að keppa við West Ham um Svíann.

Einnig er mikið talað um að Matthew Upson sé í sigtinu hjá Moyes, hann virðist reyndar vera í sigtinu hjá annsi mörgum. Samningur Upson er við það að renna út og talið er að West Ham reyni að fá sem mest fyrir hann áður en samningurinn er liðinn.

Enn reynir Mark Hughes að ná frá okkur mönnum, nú er talað um að hann vilji fá Rodwell, reyndar er einnig talað um að Sir Alex hafi augastað á þessum unga og knáa leikmanni.

Hvernig spá menn síðan í leikinn á fimmtudaginn? Hér fylgir list þeirra sem eru reiðubúnir í slaginn gegn Benfinca. Howard, Nash, Hibbert, Distin, Yobo, Baines, Cahill, Fellaini, Rodwell, Gosling, Coleman, Jo, Yakubu, Saha, Baxter, Wallace, Akpan, Agard, Duffy.

Góðar stundir.

Smá viðbót, hér er tengill á grein sem birtist á SOS1878.co.uk en hún fjallar um hvers vegna Evreton sé físilegur kostur fyrir fjárfesta, einnig er í greininni gagnrýni á Kenwright og hans "sparsemi" hvet ykkur til að lesa þessa grein. 

Share

Stór mánuður fyrir Everton

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Þriðjudagur, 03. nóvember 2009 09:34

Okkur hefur ekki gengið alveg eins og skyldi í síðustu leikjum, en nú er tími til að snúa blaðinu við. Í þessum mánuði eru mjög stórir leikir sem verða að vinnast. Á fimmtudaginn fáum við tækifæri til að hefna ófarana gegn Benfica, þegar þeir koma í heimsókn á Goodison. Næst er leikur við West Ham, þá Man Utd. sem væri mjög ljúft að vinna, Hull og að lokum er stórleikur við erkifjendurnar í Liverpoo. Að mínu mati veltur framtíð Everton á þessu tímabili svolítið á þessum mánuði. Náist hagstæð úrslit í leikjum mánaðarins fer allt upp á við.

 

Þá er komið að slúðrinu um hverja Moyes hefur áhuga á að fá í janúar. Þar er fyrst að nefna Javi Garcia, 22 ára gamall leikmaður Benfica. Ekki tel ég þó líklegt að hann komi til Everton þar sem hann kostaði 7 milljónir punda þegar hann kom frá Real Madrid og er ný búinn að skrifa undir fimm ára samning við Benfica. Væri samt góð viðbót, því er ekki að neita.

Þá er talið að Moyes fari á eftir Gary O´Neil frá Boro, en hann hefur haft augastað á honum í dágóðan tíma. Þá er einnig talað um Chris Eagles frá Burnley. Einnig er byrjað að ræða aftur um að Kim Lallstrom sé í pípunum hjá Moyes, en talið er að það þurfi að borga annsi mikið fyrir hann.

 

Hvað finnst ykkur, eru þetta nógu góðir menn fyrir okkur, eða eigum við að miða hærra? Meiðsli í herbúðum okkar eru áhyggjuefni og nokkuð ljóst er að það þarf að kaupa góða leikmenn í janúar.

Góðar stundir!

Share
 

Síða 5 af 27

« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Nýtt af spjallinu

Borði

Spurningin