Everton.is

 
 

Lassana Diarra

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Miðvikudagur, 09. janúar 2008 11:58

Nú er uppi orðrómur þess efnis að fjögur lið séu í baráttu að ná til sín Lassana Diarra. Samkvæmt The Cazette í dag þá kemur fram að Newcastle, Tottenham, Blackburn og Everton séu á eftir þessum knáa leikmanni. Hann kom til Arsenal á lokadegi félagaskiptagluggans í fyrra, frá Chelsea. Heyrst hefur að Arsene Wenger hafi sett 6 milljóna £ verðmiða á kappann. Nú er bara spurning hver hreppir hnossið og hvort að hann henti spili okkar manna.

       Lassana Diarra

Spænskir fjölmiðlar eru uppfullir af því í dag að Manuel Fernandes sé staddur á Bretlandseyjum að ræða málin við Everton. Nú er spurning hvort þetta hafist í dag?

 


Share
 

Leikur á móti Chelsea í kvöld

Skrifað af: Administrator
Þriðjudagur, 08. janúar 2008 11:39

PieenarEverton heimsækir Chelsea í fyrri leik liðana í deildarbikarnum í kvöld. Það er ljóst að okkar menn verða spýta í lófana ef þeir eiga ná einhverju æut úr leiknum í kvöld eftir tap á móti Oldham um helgina. Þeir Tim Howard, Nuno Valente  og P.Neville koma allir aftur inn í hópinn og auk þess hafa Yobo og Yakubu fengið leyfi frá Nígeríska knattspyrnusambandinu til að spila í kvöld.

Everton verður hinsvegar án Arteta sem er en í banni, Leon Osman sem er fótbrótinn og Steven Pienaar sem fékk sig ekki lausan út af Afríkukeppninni.

Seinni leikurinn fer síðan fram 23.janúar á heimavelli Everton. 

Share

Tap á móti Oldham

Skrifað af: Administrator
Sunnudagur, 06. janúar 2008 15:30

Sorglegt tap á móti 1.deildarliði Oldham á heimavelli leit dagsins ljós í gær. Eina mark leiksins skoraði McDonald á síðstu mínótu fyrri hálfleiks. Everton sótti stíft allan seinni hálfleik án árangurs.

Ekki sá ég leikinn en ég held að allir séu sammála því að þetta er  gríðarleg vonbrigði fyrir leiðið sem hefur verið á miklu flugi upp á síðkastið.

Share
 

Slúður

Skrifað af: Administrator
Fimmtudagur, 03. janúar 2008 14:32

Hinar og þessar slúðurfréttir eru nú að ganga um leikmannakaup og að sjáflsögðu er Everton nefnt í þessu samhengi. Þetta er einna helst að frétta (slúðra):

  • * Eru að reyna kaupa Mark Beaver miðvörð Sheffield Wed á 1 milljón punda
  • * Dan Gosling 17 ára miðjumaður frá Playmouth á 1,5 milljón punda
  • * Daniel Buyten frá Bayern Munchen
  • * Makedóníumaðurinn Goran Pandev hefur lýst yfir áhuga ða spila með Everton

 

veit einhver um meira slúður ?

Share

Sigur gegn Boro

Skrifað af: Administrator
Miðvikudagur, 02. janúar 2008 14:25

AJ fagnar

Everton vann í gær 0-2 sigur á móti M´boro. Mörkin komu frá Andy Johnson og McFadden sem voru báðir í byrjunarliðinu í fjarveru Arteta og Cahill. Mörkin komu með stuttu millibili um miðjan seinni hálfleik, en Boro-menn höfðu sótt stíft þar á undan og oft mátti ekki miklu muna að þeir næðu forrystunni.

Annars sá ég ekki leikin og lýsi hér með eftir góðum pennum til þess að skrifa inn fréttir. 

Share
 

Sorglegt Tap

Skrifað af: Administrator
Laugardagur, 29. desember 2007 19:23

sorglegt tap

Everton tapaði rétt í þessu á mót Arsenal á heimavelli 1-4. Okkar menn voru mun sterkari í fyrri hálfleik og náðu að komast yfir eftir mark Tim Cahill úr hornspyrnu Arteta. Auk þess sköpuðu þeir sér nokkur hálffæri.

Í síðari hálfleik snéru Arsenalmenn hinsvegar taflinu við með 2 mörkum frá Eduardo á stuttum tíma eftir að hafa fíflað Jagielka í bæði skiptin. Seinna bætti Adibayor (eða hvað hann heitir) markki við eftir fáranleg mistök Yobo og Howards. Og svo í lokin skoraði varamaðurinn Rosicky með góði skoti inn í teig.

Í byrjun leit þetta ansi vel út fyrir Everton, en 3 slæm varnamistök gerðu útum leikin fyrir Everton og annað tap Everton í 3 leikjum staðreynd. Svo er bara ða vona að Everton nái að finna formið aftur fyrir leikin á nýársdag sem er á móti M´boro á útivell.

Share

Spjallið komið í gang

Skrifað af: Administrator
Föstudagur, 28. desember 2007 14:08

Spjallið komið í gang
Share
 

Síða 26 af 27

« FyrstaFyrri21222324252627NæstaSíðasta »

Nýtt af spjallinu

Borði

Spurningin