Everton á Íslandi

 
 
Microsoft Software download

Saha farinn

Metnaður Tottenham er greinilega að verða varalið Everton en þeir voru að fá Louis Saha til liðs við sig frá okkur (glöggir lesendur muna eflaust að þeir buðu líka í Phil Neville fyrir nokkru). Flestir voru búnir að afskrifa Saha þar sem hann er kominn vel yfir þrítugsaldurinn og hefur aðeins skorað eitt mark á tímabilinu (og byrjaði og endaði síðasta tímabil með meiðslum) -- en tókst þó að næla sér í 10 mörk á því tímabili (4 mörk í einum leik gegn Blackpool hjálpaði reyndar heilmikið). Kaupin á Jevlic voru líklega naglinn í líkkistuna en Moyes hafði gefið honum viðvörun að hann þyrfti að standa sig almennilega þar sem hann væri á síðasta ári samnings síns og þyrfti að sýna af hverju hann teldi sig eiga rétt á framlengdum samningi. Það virtist þó ekki duga til.

Það verður þó að viðurkenna að hann er afskaplega hæfileikaríkur sóknarmaður (þegar hann er heill) og ég vona innilega að Harry Redknapp komi honum á beinu brautina. Við þökkum Saha fyrir vel unnin störf og allar góðar minningar, sérstaklega skjótasta markið sem skorað hefur verið í úrslitum FA bikarsins (25 sekúndur gegn Chelsea 2009). Við óskum honum alls hins besta í framtíðinni.

Share
Comments (2)
  • Elvar Örn
    Saha hefur bara gott af þessari breytingu og hann var að komast á aldur og ekki verið að spila næginlega vel hjá Everton árið 2011. Ég sá meira eftir Yakubu og Beckford og þá sérstaklega að Moyse skuli hafa losað sig við þá báða í sumar ásamt Vaughan og því höfum við átt í framherjavanda í allan vetur.
    Nú er stracqualursi að spila fantavel og Vellios verið góður skiptimaður sem og verður gaman að sjá hvað Jelavic koma sterkan inn. Ekki verra að sjá Pienaar mata hann af kantinum.
  • brekmundur
    Já, ég er sammála þessu. Ég var sérstaklega hissa að sjá ekki t.d. Yakubu fá smá séns áður en hann var seldur því hann virtist vera að finna sitt gamla form með Leicester (11 mörk í 20 leikjum) og nú er hann búinn að skora 13 mörk í 18 leikjum með Blackburn...
Only registered users can write comments!

!joomlacomment 4.0 Copyright (C) 2009 Compojoom.com . All rights reserved."