Everton.is

 
 

Verður Rodwell seldur?

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Mánudagur, 30. ágúst 2010 09:54

Nú heyrist að Alex Ferguson vilji fá Rodwell í sínar raðir. Hann er reiðubúinn að borga rúmmlega 10 milljónir og setja Michael Carrick uppí.

Meira síðar.

Share
 

Síðasta vikan til að kaupa og selja

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Fimmtudagur, 26. ágúst 2010 15:03

Jæja nú eru síðustu dagarnir áður en leikmannaskipta glugganum verður lokað. Allt hefur verið hljótt hjá okkar mönnum. Þó verða sögusagnir háværari að Everton sé nálægt því að ná samkomulagi við Sporting Lissabon um kaup á Marat Izmailov. Hann er 27 ára og getur spilað á hægri kanti. Hann er ekki í náðinni hjá stjóra Sporting. Hann byrjaði feril sinn hjá Lokomotiv Moscow. Hann hefur verið hjá Sporting síðan 2007. Þó hafa meiðsli hrjáð þennan leikmann stóran hluta ferils hans.

Þá er nýjasta slúðrið að Moeys sé að íhuga að semja við ítölsku kempuna Mauro Camoranesi frá Juventus. Þetta kom fram á Sky í dag. Þó verður það að teljast ólíklegt þar sem Moeys er ekki þekktur fyrir að semja við þetta gamla leikmenn.

Þá hefur komið fram hjá njósnurum Everton að þeir séu frekar að horfa til að bæta í mannskapinn í janúar, frekar en núna.

Einnig hefur komið fram að menn eru enn að velta fyrir sér hvort að Crouch komi til Everton í skiptum við Pienaar, en lýst hefur verið yfir að Everton vilji halda Pienaar og það boð sem komið er í hann, 6 milljónir, sé engan veginn ásættanlegt. Talið er að Yobo sé í viðræðum við Celtic að fara þangað á láni.

Þá er eitt nafn enn í pottunum en það er Dries Mertens sem er á mála hjá  FC Utrecht í Hollandi. Þetta er þó ekki mjög líklegt þar sem Dries hefur gefið út að hann vilji vera í Hollandi. Dries er 23 ára sóknar miðjumaður.

Síðan "skemmtilegu" fréttirnar en José Murhinio hefur gefið út að hann myndi frekar vilja stjórna Everton en Liverpool. Hann sagði að fyrsta val hans væri Man Utd, en þar á eftir kæmu Arsenal, Tottenham og Everton, þetta væru einu liðin sem vert væri að taka að sér.

Meira síðar.

Share

Er Moyes á útsölum?

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Þriðjudagur, 10. ágúst 2010 10:38

Talið er að Moyes sé að reyna að ná Peter Crouch til sín fyrir mjög lækkað verð. En Crouch virðist ekki eiga framtíðina fyrir sér á White Hart Lane. Heyrst hefur að Moeys vilji fá eitt stykki reynslubolta í efstu deild við hliðina á Beckford.

Þá er næsta víst að Yakubu verði seldur fyrir vikulok. Eða svo segir pressan. Talið er að West Ham séu klárir með 8 milljóna punda boð í Yakubu. Moyes vill eyða þessum 8 milljónum og fjórum betur í Loic Remy. En hann er 23 ára gamall Frakki. Hann spilar með Nice í frönsku deildinni. Hann spilaði 36 leiki á síðasta tímabili og skoraði 16 mörk. Þetta er svona eitt af efnunum í frönsku deildinni. Sagt er að stjórnarmenn Everton séu reiðubúnir að grafa upp 4 milljónir svo að Moyes geti náð Remy til Goodison.

Enn liggur Moyes yfir þrotabúum knattspyrnufélaga, en hann er við það að ná til sín 20 ára spænskum varnarmanni frá Sporting Gijón, Jose Angel. Jose er metinn á 15 milljónir punda, en þar sem Sporting er í miklum fjárhagsvandræðum er talið að Everton geti fengið hann fyrir 3 milljónir. Einnig er talið að Jose vilji fyrst og fremst fara til Everton, en einnig hafa Liverpool, Tottenham og Wigan sýnt kappanum áhuga.

 

Meira síðar.

Share
 

Arteta gerir 5 ára samning og fyrsti leikurinn í deildinni

Skrifað af: Georg Haraldsson
Sunnudagur, 08. ágúst 2010 17:48

Arteta Agrees New Deal

Eins og eflaust flestir ef ekki allir Everton aðdáendur vita þá var Mikel Arteta að gera nýjan 5 ára samning við okkar ástkæra félag sem gerir hann að launahæsta leikmanni sögunnar og segja fréttir að hann sé með £75.000 í vikulaun. Þetta er að mínu mati bestu fréttir ársins, þar sem þessi leikmaður er okkur gríðarlega mikilvægur. Aðeins ef skoðuð er sú tölfræði að eftir að Arteta kom til Everton höfum við unnið 47% leikja með hann í liðinu á móti einungis 31% án hans, segir okkur að þessi leikmaður er liðinu gríðarlega mikilvægur. Spurning hvort Pienaar fylgi eftir og skrifi undir nýjan samning, en að mínu mati á hann aldrei að fá sömu laun og Arteta en sjáum til hvað gerist. 

Fyrsti leikur Everton í deildinni er á laugardaginn kl 14:00 gegn Blackburn á Ewood Park. Ég hélt að leikurinn yrði ekki sýndur þar sem Vísa bikarinn er á sama tíma en ég var að sjá að hann verður sýndur á Stöð 2 sport 3, samkvæmt auglýsingu á Sport 6 hliðarrásinni en hinsvegar er leikurinn ekki auglýstur á heimasíðu stod2.is.

Svo vill ég fá smá umræðu um hvaða byrjunarlið þið viljið sjá gegn Blackburn og hverja þið viljið sjá á bekknum. Liðið sem ég vill sjá að byrji gegn Blackburn er eftirfarandi:

------------Howard--------------
Neville-Jagielka-Heitinga-Baines
-------------Fellaini-------------
Billy-------Arteta------Pienaar
----------Cahill---------------
---------------Saha-----------

Bekkurinn: Mucha, Coleman, Rodwell, Beckford, Yakubu, Distin, Osman. Semsagt ekkert pláss fyrir: Yobo, Hibbert, Gueye, Anichebe og Vaughan. Hinsvegar kæmi mér ekkert á óvart ef Moyes hefði Hibbert og Osman í byrjunarliðinu, ásamt því að Distin myndi byrja í stað Heitinga þar sem Heitinga er nýkominn til baka eftir frábæran árangur á HM. Að mínu mati eru Osman og Hibbert ekki byrjunarliðsmenn og ég vona að Moyes sé mér sammála.

Þessi leiktíð leggst mjög vel í mig, bæði það að allir leikmenn eru heilir og að það hefur aldrei verið meiri breidd í hópnum. Mín spá er að við náum 4. sætinu. Raunhæft markmið tel ég 4-7 sæti og spilar þar mikið inn í  að halda lykilmönnum heilum. Hver er þín spá?

Ég ákvað að rífa fram pennann aftur og verð vonandi duglegur að henda inn fréttum hér í vetur. Það væri gaman að rífa upp everton.is síðuna almennilega og sé ég strax jákvæða hluti í gangi á síðunni.  

Áfram Everton!

Share

Hvað gerist á næstu dögum?

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Föstudagur, 06. ágúst 2010 09:50

Ekki er nú mikið líf í leikmannamarkaðinum hjá okkar mönnum þessa dagana. Þó hefur Kenwright gefið það opinberlega út að hann útiloki ekki að opna budduna fyrir Moyes. Þetta kemur í kjölfarið á að tilkynnt var að Chang og Everton hefðu gert nýjan samning. Gamli samningurinn hljóðaði upp á 8 milljónir punda á næstu þremur árum sem Everton fær frá Chang en orðrómur er um að honum hafi verið breytt í 15-30 milljónir punda á næstu þremur árum. Þetta er þó ekki staðfest.

Moyes hefur gefið það út að hann vonist til að fá Donovan á láni á sama hátt og á síðasta tímabili. Hann segist vita að Donovan vilji koma aftur til Everton en hann sé þó ekki reiðubúinn að kaupa hann fyrir 11 milljónir punda. Þó segir nýjasta slúðrið að Moyes vilji selja Yakubu fyrir 9 milljónir punda og þá sé hann reiðubúinn að láta þá peninga í Donovan. West Ham eru búnir að bjóða 7 milljónir í Yak en því var hafnað. Talið er að Everton samþykki 9 milljónir fyrir hann.

Þá vakir Moyes nú yfir yfirvofandi gjaldþroti Pourtsmouth en talið er að Moyes vilji fá Kevin Prince Boateng í sínar herbúðir. Talið er að Moyes sé búinn að ræða við Boateng og að Everton verði fyrsta val hans ef Pourtsmouth fer á hausinn en þá fer hann á frjálsri sölu.

Þá er talið að Michael Ball snúi aftur á Goodison, en hann spilaði fyrir Everton 1996-2001 og á einn landsleik að baki. Hann hefur spilað með Rangers, PSV og Man City. Talið er að Moyes vilji fá einn traustann bakvörð sem hægt er að leita til af bekknum.

Þá er talið að Ian Turner fari yfir til Skotlands þar sem Jan Mucha er kominn til Everton. Turner vill ekki vera þriðja hjólið á milli stanganna.

Þá leiðinlegu fréttirnar en líklegt þykir að Vaughan fari á útsölu til Blackburn á næstu dögum fyrir skitna 1,5 milljónir punda.

Meira síðar. 

Share
 

Allt að gerast

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Laugardagur, 31. júlí 2010 01:30

Jæja nú er nýtt tímabil um það bil að hefjast. Það sem ég sá á everton síðunni á facebook var að brýnt er að kalla saman aðalfund og kjósa nýja stjórn sem rífur klúbbinn upp. Ég er sammála því, ég á að heita ritari en geri lítið. Nema það að setja hér inn fréttir en fæ lítið comment á móti. En á meðan ég hef eitthvað að segja þá held ég áfram að setja inn hitt og þetta, þó svo enginn skoði það.

 

Það helsta er að Donovan er áhugasamur um að snúa aftur á Goodison, enda væri það bar snilld að fá þennan snilling í föstum leikatriðum í okkar raðir. Nokkuð ljóst þykir að Everton þurfi að opna budduna mjög mikið til að ná í þennan, en maður veit aldrei. Það eina sem stendur í vegi fyrir að Donovan komi er að LA vill fá annsi góða summu fyrir kappann. Spurningin er þurfum við að selja Pineaar til að ná í Donovan og borgar það sig??

Þeir sem komnir eru fyrir næsta tímabil eru Jermaine Beckford, Joao Silva, Magaye Gueye og Jan Mucha. Beckford gerði að sjálfsögðu góða hluti með Leeds, en hefur hann það sem þarf í Úrvalsdeildina? Joao er tvítugur og á framtíðina fyrir sér, hann spilaði 30 leiki fyrir annarrar deildar liðið Aves í Portúgal og skoraði 14 mörk á síðasta tímabili. Verðum við ekki bara að treysta Moyes með þennan?

Magaye Gueye var keyptur frá Strasbourg hann er 20 ára gamall framherji. Spurning afhverju allir Frakkar eru á útsölu? En hann spilaði með yngri landsliðum Frakka við góðan orðstír. Hann hefur nú þegar skorað eitt mark fyrir Everton á undirbúningstímabilinu, sem er gott, ekki satt?

Þá er það Jan Mucha, en hann er hinn gríðar góði markvörður Slóvaka. Hann spilaði alla leiki Slóvaka á HM 2010 og stóð sig frábærlega. Spurning hversu mikla samkeppni hann nær að setja á Howard.

 

Jæja hvað segið þið????

 

Share

Sætur sigur

Skrifað af: Einar Guðberg Jónsson
Miðvikudagur, 10. febrúar 2010 21:59

Þessi frétt er skrifuð í mjög mikilli sigurvímu, en við áttum fyllilega skilið að vinna þennan leik í kvöld. Þetta var nákvæmlega það sem okkur vantaði eftir ósigurinn gegn Liverpool. Nú höfum við unnið 10 leiki og tapað einum í síðustu ellefu. Það eru alltaf stórtíðindi að vinna Chelsea. Þó svo að Saha klúðraði víti (ekki vel tekið) þá höfðum við baráttu sigur. Til hamingju félagar. Nú langar mig að umræður byrji aftur á síðunni, þetta er búið að vera alveg dautt hjá okkur.

Nil Satis Nisi Optimum. COYB:

Góðar stundir!

Share
 

Síða 1 af 27

« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Nýtt af spjallinu

Borði

Spurningin