Tölfræði

Ég tók að gamni saman smá tölfræði yfir tímabilið eins og það lítur út í dag. Ég tók einkunnagjöf Sky Sports fyrir leikmenn Everton, taldi saman mörkin sem við höfum skorað og stoðsendingarnar eins og Goal.com skráir þær og setti upp í eftirfarandi töflu. Coleman er greinilega uppáhaldsleikmaður Sky Sport og Baines og Cahill koma fantavel út úr þessu líka. Saha og Beckford byrjuðu tímabilið rólega en eru nú að komast í gang. Pineaar átti enga stoðsendingu á tímabilinu eins og bent hefur verið á.


Einkunn Mörk Stoðs.
Coleman 7.00 5 2
Baines 6.92 3 9
Cahill 6.80 9 4
Distin 6.77 1 0
Fellaini 6.63 3 2
Jagielka 6.52 0 0
Howard 6.50 (38)
Pineaar 6.44 1 0
Saha 6.37 9 2
Arteta 6.24 3 1
Neville 6.20 0 0
Osman 6.14 1 3
Yakubu 6.07 1 0
Rodwell 6.00 1 1
Anichebe 6.00 0 0
Gueye 6.00 0 0
Bilyaletdinov 5.94 1 1
Beckford 5.90 6 1
Heitinga 5.78 0 0
Hibbert 5.40 0 0
Vaughan 5.00 0 0

Ath: Það vantar suma bikarleikina inn í útreikning á meðaleinkunnagjöf og stoðsendingum þar sem Sky Sports og Goal.com virðist ekki fylgjast með bikarleikjunum í öllum tilfellum. Þeir sem vilja fara yfir gögnin hrá geta skoðað þau hér.

Comments are closed.